Auglýsing

Næsta hundasýning HRFÍ

Næsta sýning hjá Eldi

Næsta sýning hjá Harry

Könnun

Á ég að sækja um ræktunarnafn??

Kominn tími til!!!

27. janúar 2010 klukkan 20:06
Ætli það sé ekki best að setja eitthvað hérna inn. Afsakið að ég hef ekki bloggað en það hefur bara verið frekar mikið að gera en núna ætla ég að setjast niður og reyna skrifa eitthvað hérna inn!!
Um síðustu helgi var hundasýning í Turku þar sem báðir strákarnir mínir voru skráðir:D þetta var fyrsta sýninginn hans Harrys í ungliðaflokk og gekk hún mjög vel en hann fékk exellent og endaði í 1. sæti í ungliðaflokk en fékk ekki sæti besti rakki tegundar enda voru þvílíkt margir rakkar að keppa þar og Harry bara rétt orðinn 10 mánaða gelgja;) en hann fékk mjög flotta umsögn:
10 month. Male with a excellent pigment. Chissor bite, good neck and topline. Good ribcage. Angulation ok. Good tailset. Exellent movement. Dómari í snöggum var Monika Blaha frá Austuríki. Ég sýndi líka gotsystur hans Harrys sem fékk líka exellent og endaði í 3. sæti í ungliðaflokk.
Eldi gekk líka mjög vel en hann endaði í 3.sæti í meistaraflokk en fékk heldur ekki sæti í besti rakki en þar var líka góður hópur að keppa. Eldu fékk fína umsögn:
Friendly and active male with beautiful movement. Correct mouth. Sufficiently domed skull. Beautiful reach of neck and nice body. Rich coat. Solid temperament. Dómari síðum var Jochen H. Eberhardt frá Þýskalandi.
Ég sýndi svo 3 Papillon sem gekk svona ágætlega en ég var samt voða montinn með að í öllum umsögnunum þeirra stóð „very well show" Laughing svo ég var bara mjög sátt með þessa sýningu.
Annað er svo sem ekki að frétta héðan frá Finnlandi nema að það er enþá frost og snjór hérna! Snjórinn er búin að vera síðan um miðjan desember og frostið eitthvað lengur. Fyrir svona 2 vikum þá fór hitastigið upp í 0°C en annars er búið að vera frá -5°C til -14°C reyndar á sunnudagsmorguninn var -19°C. Þannig að ég geng í ullarbuxum innanundir alla daga, oftast í 2 sokkum bæði svona venjulegum og svo þykkum sokkum sem Merja keypti handa mér af vinkonu sinni. Lopapeysann er notuð öðruhverju, ullarvetlingarnir notaði óspart og ullartrefillinn líka svo á ég líka svona fínt ennisband sem bjargar eyrunum mínum frá því að detta af þegar frostið er sem mest!!! Eins og sjá má útfrá þessu þá eru göngutúrarnir okkar Elds ekki eins langir eða margir og þeir voru í haust!! Eftir að hann fékk blöðrubólgu fyrir jólinn þá þori ég ekki að fara með hann of langt ef að frostið er mikið. Eitt sem er öðru vísi við þennan kulda hérna heldur en heima er það að það er sárasjaldann vindur hérna en frostið bítur alveg jafn mikið og heima ef ekki meira!
Hundar
Ansa, Eldu og Harry að gæða sér á svínhölum, trýnum og eyrum.
Eldur
Harry
Venjuleg bein eru líka æt!!
Harry
Harry að pissa úti í snjónum og frostinu!!
Eldur
Eldur að leika mörgæs í sínu rétta umhverfi!!!
Eldur
Já honum finnst þetta besta svefnstelling í heimi!! Finnst ykkur lakið mitt ekki fallegt á litinnWink
Harry
Ein sæt af HarryKiss
Jæja ég ætla að hætta að tala um frost og kulda!!! Á meðan ég man þá talaði ég um það við einhverja að ég væri að hugsa um að koma til Íslands á næstu hundasýnginu en ég er búin að ákveða að gera það ekki. Þar sem ég á ekkert alltof mikinn pening og flugið til Íslands er svo rosalega dýrt þá ákvað ég að reyna frekar kannski að fara á sýningu einhvers staðar utan við Finnland í staðinnWink Ég verð líka að hugsa út í heimssýninguna næsta sumar en það mun kosta slatta pening að fara á hana!

Jæja þetta er orðið gott í bili. Ég biðst aftur afsökunar á því hvað langur tími leið á milli blogga hjá mér núna en ég skal reyna að standa mig!!
Eru þið svo öll til í að vera svo yndisleg að kvittaKiss

Klukkan

Innskráningar kubbur