Árið 2009
Jæja þá er árið 2009 að verða búið!! Það hefur sko liðið rosalega hratt og verið nóg að gera. Ég ætla því að skrifa stutta samantekt á því sem var eftirminnilegast.
Janúar
Jólafríið kláraðis og við tók háskólinn aftur en ég skipti úr verkfræðinni yfir í líffræðina í byrjun janúar í von um að það væri nám sem ætti betur við mig! Sif var kominn á hús og árið byrjaði bara nokkuð rólega hjá mér, lærdóm og útreiðar. Hvolparnir þeirra Elds og Ísabellu stækkuðu og undirbúningur fyrir vorsýninguna hófst!!
Febrúar
Febrúar fór að mestu í skóla, sýningarþjálfun, útreiðar og þjálfun. Ég byrjaði á knapamerkjanámskeiðinu eins og síðustu 2 ár, en nú var ég að taka 4 stig. Katla dóttir hans Elds kíkti í heimsókn og stjórnaði heimilishaldinu með harðri hendi á meðan, eða allavega stjórnaði hún Eldi og Frímanni og lét þá óspart hafa það ef þeir höguðu sér ekki vel. Hvolparnir hans Elds stækkuðu og stækkuðu og það fór að líða að því að þeir færu að fara að heiman. Tilhlökkun fyrir Finnlandsferðinni minni fór að gera vart við sig!! Febrúar endaði svo á sýningunni!
Mars
Mars hófst svo eins og febrúar endaði eða á vorsýningu HRFÍ. Ég sýndi 3 hunda og gekk þeim öllum ágætlega, Eldur var á fyrstu sýningunni sinni í meistaraflokk. Hann fékk excellent, meistaraefni, 2 sæti í meistaraflokk og endaði sem 3 besti hundur tegundar. Frímann var skráður í ungliðaflokk en hann fékk very good og fínan dóm. Katla var svo skráð í ungliðaflokk og fékk excellent, meistarefni, 1. sæti í flokknum en fékk ekki sæti í stórum hóp sem keppti í besta tík tegundar. Eldur var svo í Himna ræktunarhóp sem var valinn besti ræktunarhópur laugardags.
Restinn af mars leið svo bara við hundagöngur, útreiðartúra, handboltaþjálfun og skóla.
Apríl
Í byrjun apríl kom loksins endanleg dagsetning á það hvenær ég myndi fara út til Finnlands og hvenær ég kæmi heim svo þá gat tilhlökkunin hafist. Frímann fór í árlega heilsufarsskoðun og bólusetningu og kom bara því líkt vel út úr því. Páskarnir komu og fóru með tilheyrandi páskaeggjaáti og páskabingói. Ég tók svo þátt í kvennatölti eins og ég er búin að gera síðustu ár, en við Sif toppuðu held ég bara vel flestann okkar árangur í keppni, við fengum 5,33 í aðaleinkun og 11.-12. sæti af 36 í okkar flokk. Í lok apríl byrjuðu svo vorprófin í háskólanum.
Maí
Á verkalýðsdaginn varð fyrsta gotið hans Elds 1. árs og maí hélt áfram í prófatörn, bæði í háskólanum og svo knapamerkinu. Ég tók samt smá pásu þegar ég skrapp norður með stelpunum sem ég var að þjálfa. Ég get nú ekki sagt að háskólaprófin hafi farið vel en knapamerkjaprófunum náði ég. Tíminn þangað til ég fór til Finnlands fór svo í göngur og hestamannamót.
Þann 18. maí lagði ég svo land undir fót og flaug til Finnlands til að vinna þar sem kennel hjálp og sýnandi hjá hundaræktanda. Restinn af maí leið svo voða fljótt en undir lokinn fór sýningarstússið í Finnlandi að byrja.
Júní
Júní hófst á þvílíkum hita og sýningum í Finnlandi. Já ég fékk að finna fyrir því að það er aðeins heitara í Finnlandi en á Íslandi. Næstum 40°C hiti dag eftir dag. Sýningar hófust fyrir alvöru og ég sýndi nokkra hunda, fór t.d. til Eistlands til að sýna á 1 sýningu. Ég fór svo á götumarkað og sá að Finnar geta haft hina ýmsustu hluti til sölu þar!! Jónsmessan var haldinn hátíðleg í Finnlandi með pommpi og prakkt, en hún er miklu meiri hátíð þarna úti en á Íslandi. Ég tók svo þá stóru ákvörðun að eyða næstkomandi vetri í Finnlandi og að hafa Eld þá með mér til Finnlands í ágúst.
Heima á Íslandi höfðu Eldur og Frímann það gott hjá mömmu og pabba, lifðu sældarlífi vil ég meina. Þeir fóru í sveitina og mamma var þvílíkt dugleg að hafa þá með sér út að hlaupa, hjóla, í fjallgöngu eða bara að labba hverfinu.
Það var svo sumarsýning HRFÍ í lok júní þar sem Guðlaug keppti með Eld í ungum sýnendum og stóð sig mjög vel. Hún sýndi Eld svo fyrir mig í ræktundardóm og gerði það líka mjög vel en Eldur endaði sem annar besti rakki.
Júlí
Júlí hófst eins og júní endaði með áframhaldandi hita og næpuliturinn minn fór að vera á undanhaldi! Sýningarstúss hélt áfram og hitinn líka. Ég fór að stunda útreiðar á Íslensku hrossum í Finnlandi. Eldur varð svo 3 ára þann 21. júli og hafði það bara náðugt heima á Íslandi. Í júlí bættist hann Harry í hundahópinn minn en hann er kúrikall og krúttifés.
Ágúst
Hitinn hélt áfram í ágúst og fékk ég hið besta veður á afmælinum mínu. Sýningarstúss hélt áfram og svo kom að heimför minni til Íslands en þar stefndi ég á að stoppa í 9 daga til að fara á tvöfalda afmælissýningu HRFÍ og að taka Eld svo með mér aftur til Finnlands.
Ég fékk því miður þær leiðinlegu fréttir rétt eftir að ég kom heim til Íslands, að það þurfti að fella hana Sif mína þar sem það var komið að henni fótbrotinni út í haga. Þetta er víst bara svona þegar maður á hesta og ekkert við því að gera.
Sýningarnar heima á Íslandi voru rólegar hjá mér en ég sýndi Eld og svo hana Himna Lenu. Berglind sýndi svo hann Frímann. Eldi gekk mjög vel, hann fékk excellent, 2. sæti í meistaraflokk og meistaraefni en hann endaði sem þriðji besti rakki báða dagana með mjög fína dóma. Lenu gekk mjög vel báða dagana. Frímann fékk excellent, meistaraefni og endaði sem þriðji besti rakki á laugardeginum, hann fékk svo very good en ágætis dóm á sunnudeginum.
Frímann fór svo á nýtt heimili frá mér og í framhaldi af því ákvað ég að draga mig út úr hópnum sem á hann, hann er bara hress og kátur í augnablikinu á Selfossi.
Við Eldur lögðum svo land undir fót á miðvikudeginum eftir sýningarnar og fórum til Finnlands, en það gekk bara eftir bestu vonum. Strax svo á sunnudeginum var Eldur skráður á sýna fyrstu sýningu í Finnlandi, en það var hann Graham Foote sem dæmdi tjúa þar. Eldur gerði sér lítið fyrir og varð besti rakki og annar besti hundur tegundar, hann fékk finnska meistarastigið og varð því finnskur meistari á sinni fyrstu sýningu í Finnlandi. Harry varð svo besti hvolpur tegundar bara rétt 6 mánaða á sinni fyrstu sýningu.
September
Í byrjun september var önnur sýning þar sem Eldur var aftur skráður og þar gekk svona líka rosalega vel en hann endaði aftur sem besti rakki tegundar og annar besti hundur tegundar. September leið svo að mestu í róleg heitum við vinnu, hundagöngu og útreiðar. Reyndar ákvað Eldur að vera með smá vesen og við fórum nokkrar ferðir til dýra til að reyna að finna út hvað var að angra hann en ekkert fannst. Hann sýndi þó viðbrögð við sýklalyfjum og að lokum lagaðist kallinn minn en ég veit enn ekki hvað var að angra hann.
Október
Í byrjun október var þriðja sýningin hans Elds í Finnlandi, en það var sérsýning Chihuahua klúbbsins í Finnlandi. Eldi gekk mjög vel en hann varð í 3. sæti í ágætlega stórum meistaraflokk. Þetta var líka önnur sýningin hans Harrys, hann endaði sem besti rakka hvolpur tegundar og annar besti hvolpur tegundar. Ég sýndi eins og alltaf einhverja aðra hunda og gekk það ágætlega.
Eldur lagði svo land undir fót og skrap til Lettlands á sýningu. Hann gerði sér lítið fyrir og nældi sér í 1 stykki meistarastig þar og varð besti hundur tegundar. Með þessu þá varð hann Lettnesku meistari.
Nóvember
Í byrjun nóvember fórum ég, Eldur og Elsa til Danmerkur á tvöfalda sýningu í Herning. Það gekk rosalega vel en Elsa varð besti hundur tegundar báða dagana, fékk meistarastig báða dagana og Danish Winner titill seinni daginni. Eldi gekk líka mjög vel, hann fékk excellent báða daga og endaði sem annar besti rakki tegundar með vara alþjóðlegt meistarastig á laugardeginum.
Frá byrjun nóvember og fram að jólum var nóg að gera, það var sýning hverja helgi. Eldur var skráður á 2 alþjóðlegar sýningar í lok nóvember og Harry var skráður á aðra þeirra líka. Þessar sýningar gengu mjög vel, Eldur fékk excellent á báðum og var í 4 sæti í meistarflokk á annari en fékk ekki sæti á hinni. Harry endaði í 4. sæti í rakka hvolpunum, Harry fór líka á eina hvolpasýningu í nóvember þar sem hann varð annar besti hvolpur tegundar.
Desember
Desember hófst og það styttist óðfluga í jólinn og í heimsóknina mína á Ísland. Harry fór á aðra hvolpasýningu í byrjun desember þar sem hann endaði sem annar besti rakka hvolpur. Eldur var svo skráður á Winner sýningarnar í Helsinki þar sem hann fékk very good báða dagana en fínar umsagnir. Það fór að snjóa í Finnlandi um miðjann desember og þegar ég fór til Íslands þá var komið þykt lag af snjó.
Ég mætti svo heim til Íslands 22. des. og fór þá strax á fullt að undirbúa jólinn. Sama dag varð seinna gotið hans Elds 1 árs og ég vil óska þeim og eigendum þeirra hér með til hamingju með það, þar sem það var það mikið að gera hjá mér svona rétt fyrir jólinn að ég gat ekki sett inn afmælisblogg handa þeim.
Ég skrapp svo norður í 28. des. og kom til baka 30. des., mér fannst voða gott að koma norður en ég hef ekki komið þar í 1 og hálft ár.
Þá held ég að þetta sé komið!!
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!!
Þið megið endilega vera enþá duglegri að kvitta fyrir komuna, mér þykir voða vænt um það þegar fólk kvittar!
Gleðileg jól!!!
Já ég er kominn heim til Íslands og búinn að vera heima í 2 daga
það er búið að vera nóg að gera hérna heims svo ég hef ekki haft tíma til að henda neinu hér inn!! Það verður að bíða aðeins lengur!!
Ég ætlaði bara að setja þetta hérna inn líka:
Þetta verður jólakortið mitt í ár, vonandi er einginn sár yfir því!!!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Takk æðislega allir fyrir árið sem er að líða og hittumst hress og kátt einhvern tíman á því nýja
Winner sýningar búnar!!
Winner sýningarnar gengu ágætlega sko, eins og ég var búin að segja þá bjóst ég ekki við miklu og var það alveg rétt hjá mér. Eldur fékk very good báða dagana en báða dómarar gáfu þó nokkrum meisturum very good, það voru btw. 16 síðhærðir meistarar skráðir!! Ég get svo sem ekki sagt að ég hafi verið sammála dómurunum í alla staði en maður er það heldur aldrei svo!! Hundarnir sem voru bestu hundar tegundar voru allir mjög góðir hundar!!
Á laugardeginum sýndi ég Lexus og fékk hann excellent og 3. sæti í ungliðaflokk, ég sýndi svo líka Nölu sem fékk very good og svo hann Rico sem fékk excellent og 4. sæti í sínum flokk. Merja sýndi svo ræktunarhóp sem fekk heiðursverðlaun og var besti ræktunarhópur tegundar. Elsa var svo besti hundur tegundar í rússkíunum og ég fór svo með hana í stóra hringinn sem var rosa gaman en við fengum ekki neitt þar.
Á sunnudaginn sýndi ég Nölu sem fékk aftur very good og svo sýndi ég hana Elsu sem var aftur besti hundur tegundar. Merja var svo aftur með ræktunarhóp sem fékk sömu niðurstöðu og daginn áður. Það var svo tík sem Merja ræktaði "Helmiäisen Snow White" sem var besta tík tegundar og annar besti hundur tegundar en hún var bæði Nordic Junior Winner og Nordic Winner með því.
Þannig að í heildina séð þá var þetta nokkuð góðir dagar og við fórum bara nokkuð sátt heim, öll búin á því eftir 2 langa sýningardaga!!
Ég vona að þið skiljið þetta ég einhvern veginn er enþá þreytt eftir helgina en ákvað að henda þessu hérna inn

Heyrðu og já ekki má gleyma ungum sýnendum! Ég náði að sjá smá af þeim og stóðu þær sig frábærlega stelpurnar frá Ísland enda endaði Ísland í 2. sæti í liða keppninni. Þær voru svo 3 af 4 valdar í 10 manna úrslit, ekkert smá flott hjá þeim

Það fór að frysta um helgina hérna í Finnlandi og í gærkvöldið byrjaði að snjóa smá svo þegar ég vakanði í morgun þá var komið þunnt hvítt teppi yfir allt og ég ákvað að drífa mig út í smá myndalabb með strákana í fjörunni. Hér sjáið þið útkomuna!!


Það er bara orðið nokkuð jólalegt hérna!!

Harry var ekki alveg viss hvað honum fannst um kuldan en það var allavega hægt að pissa!!

Og pissa meira!!

Eldur að hlaupa!!!

Og Harry að gera nr. 2 líka þótt það sé kalt!!

Eldur í fíni myndapósu!!

Já já ég er að koma!!!

Vúhúúú!!

Vííííí!!!

Ein svona flott í lokinn! Takið eftir kúlunum í sjónum, mér fannst þær frekar findnar!!
Nálgast jól og sýningu!!

Héðan að utann er allt gott að frétta, nóg að gera eins og venjulega!! Það er alveg magnað hvað það að hafa sýningu um hverja helgi gerir mann upptekinn!! Hehehe ekki það að ég hafi eitthvað á móti því, þvert á móti finnst mér þetta fínt.
Já en síðasta laugardag var lítill hvolpasýning inn í Helsinki, við vorum með 4 hvolpa skráða og svo voru 2 aðrir hvolpar frá Merju skráðir. Til að gera langa sögu stutta þá fengu allir hvolparnir sem við vorum með skráða heiðursverðlaun og Dani endaði sem BOS hvolpur, ræktunarhópurinn fékk líka heiðursverðlaun og fyrsta sæt. Af hinum 2 hvolpunum þá fékk annar heiðursverðlaun. Þannig að þetta var bara nokkuð góður dagur sko

Næst á dagskrá eru svo Winner sýningarnar, mig hlakka rosalega til. Ég reynda bíst ekki við neinu því það ertu pott þétt alveg slatti af meisturum skráðir og svo einhvern veginn er tilfiningin mína þannig að ég fái ekki neitt á þessari sýningu en það verður samt gaman að sýna og hitta allt fólkið. Eftir tjúa hringinn á laugardeginum verður svo nokkurs konar hittingur þar sem allir koma með eitthvað gott að borða og svo verður spjallað helling!! Það eru svo nokkrir Íslendingar að koma á þessar sýningar en Ísland er með lið í ungum sýnendum á Nordic Winner sýningunni, þannig að kannski maður rekist á einhverja íslendinga!!
Meira er svo sem ekki að frétta. Ég skal reyna að vera fljótari að blogga um Winner sýningarnar en ég hef verið núna síðustu sýningar

Munið að kvitta!!
Ein svona í lokinn af nammi namm;)

Þessi krútt eru 11 daga ef ég man rétt en þau eru öll súkkulaði lituð
Turku sýningin
Eldur fékk excellent, mjög fína umsögn og var 5 í meistaraflokk. Hér er umsögnin:
Very clean outline. Good chest. Correct earset. Round dark eyes. Muzzle a little bit too long. Level topline. Well developed fore chest. Strong hind quaters. Well carried tail. Moves correct in rear, little wide in front.
Ég sýndi svo hana Nölu "Helmiäisen Empress of Joy" og Lois "Helmiäisen Lois Lane". Þær fengu báðar excellent, Nala varð önnur í ungliðaflokk og Lois vann meistarflokkinn. Lois endaði svo sem önnur besta tík og fékk CACIB þar sem tíkinn sem var í 1. sæti var ungliði og gat því ekki fengið CACIB. Besta tík tegundar og BOS eða annar besti hundur tegundar var Helmiäisen Snow White. Merja hafði sýnt Lexus í rökkunum og fékk hann excellent og 2. sæti í ungliðaflokk. Við sýndum svo ræktunarhóp með Lexus, Nölu, Lois og Snow White (ég hef ekki hugmynd hvernig ég á að skrifa gælunafnið hennar
) en hópurinn fékk, heiðursverðlaun og varð í 1. sæti. Þannig að við vorum nú bara mjög sátt við þetta.Næst voru það svo snöggir en þar vorum við með 2 hvolpa skráða, Harry, gotsytur hans hana Dani og svo hann Mocco. Ég byrjaði á að fara með litlu gelgjuna mína inn í hring en hann er að mínu mati alveg á miðri gelgju bæði í hreyfingum og vexti svo við vorum ekki að búast við neinu!! Hehehe, það voru held ég 5 rakkahvolpar skráðir í snöggum og fannst mér þeir eiginlega allir vera mun meira þorskaðir en Harry er. Harry fékk samt voða fína umsögn og endaði í 4. sæti í rakkahvolpunum. Hér er umsögnin hans:
Very outgoing. Lovely head. Good teeth. Long neck. Level topline. Well laid shoulders. Carries his tail well. I would like more ribbing. Correct rear movement, incorrect front movement.
Næst var það Dani "Helmiäisen Dancing Queen" en hún gerði sér lítið fyrir og vann tíkarhvolpana, með heiðursverðlaun og endaði svo sem besti hvolpur tegundar. Síðasti hundurinn sem ég svo sýndi var hann Mocco en hann fékk very good og annað sæti í unghundflokk en fína umsögn.
Þannig að í heildina þá fórum við Merja bara mjög sáttar heim enda ekki annað hægt

Næst á dagskrá hjá okkur er svo hvolpasýning næsta laugardag og svo eru það Winner sýningarnar helgina þar á eftir en það eru sem sagt Finnish Winner á laugardeginum og svo Nordic Winner á sunnudeginum. Það er gaman að segja frá því að það eru 17000 hundar skráðir á báðar sýningarnar samtals og ef ég man rétt þá eru á milli 55 og 65 chihuahua skráðir hvorn dag svo þetta verður voða gaman:D Til að tala meira um stærðina á þessari sýningu;) þá eru 102 hringir hvorn dag!!
Jæja ég held að þetta sé orðið gott, ég er með nokkrar myndir teknar í Danmörku í byrjun nóv. af henni Lindu, ég vona að henni sé sama þótt ég setji þær hérna inn


Eldur sæti á laugardeginum!!

Við Eldur, rakkinn fyrir framan okkur var besti rakki og besti hundur tegundar á laugardeginum.

Ég og Elsa að æfa okkur á laugardeginum!

Ég og Elsa í stóra hringnum á sunnudeginum!
Endilega munið að kvitta
og svona bara að minna á að það er kominn desember og meira að segja 2. des sem þýðir að það eru bara 20 dagar þangað til ég kem heim