Hundar gera okkur að betri mönnum.
Það er allt gott að frétta af hvopunum, þau eru að verða 9 vikna á morgun. Max og Spike eru komnir með heimili, Spike kemur til með að heita Dreki en ég veit ekki hvort þau ætla að kalla Max eitthvað annað! Svo það er bara hann Skjöldur sem á eftir að fá heimili!!
Kolla og Villa komu í heimsókn til mín í gær með Ísabellu og hvolpana, það var sko þvílíkt stuð hérna með 5 litla skæruliða hlaupandi um
pabbi var rosaduglegur að taka myndir og ég er búin að setja þær inn á facebook en læt nokkrar vel valdar fylgja með hér!!
Allir þreyttir eftir allt fjörið!!

Skjöldur og Dreki

Skjöldur

Eyja skvísa!!

Dreki
Ég setti inn nýja könnun um daginn og þið megið endilega kjósa!! Langar að vita hvað ykkur finnst

Veriði nú dugleg að kvitta!!
Eldur músaskelfir!!!
Bara sma fíflagangur í mér
en við hittum sem sagt mús í göngutúrnum okkar í kvöld. Eldi var vinsamlegast bent á hana og honum fannst þvílíkt stuð að elta hana
ekki víst að músinni hafi fundist það eins gaman en það er annað mál. Hann svo sem gerði henni ekki neit nema að þefa af henni og elta þangað til hún hljóp í skjól undir gangstéttasteinum!! Þá varð hann mjög hissa og hljóp þefandi um allt, litla þefdýrið mitt
og fannst þetta nú eiginlega bara svild að hún skildi vera farinn.Varð bara að deila þessu!!!
Munið svo allir að kvitta, það er fullt af heimsókun en bara örfáir sem kvitta, alveg nóg að skrifa bara kvitt kvitt
Styttist!!
Eins og er þá er ég ekki að sýna neitt annað en tjúa svo ég verð bara í róleg heitunum!!Í gær voru líka fyrstu vetraleikarnir í Gusti og ákvað ég að keppa bara til að vera með og hafa gaman!! Það hefði nú alveg mátt ganga betur, ég var í 5. sæti en ég er samt sátt ætlaði bara að vera með og hafa gaman

Ég tók líka þá erfiðu ákvörðun að halda ekki hvolpi úr gotinu hans Elds núna. Ég er búin að vera lengi að hugsa þetta en þar sem ég verð úti í Finnlandi í 3 mánuði í sumar og því finnst mér ekki tímabært fyrir mig að halda hvolpi núna. Hvolparnir eru engu að síður æðislegir og hafa öll frábært skap enda kannski ekki við örðu að búast þar sem báðir foreldrar eru að mínu mati með fábært skap, bara pínu egó í gangi
.... híhíhí!! Þau hafa auðvitað sína kosti og galla eins og hver einasti hundur en ég held að það verði mjög gaman að fylgjast með þeim þroskast!!!Ég er því miður búin að vera mjög löt að taka myndir undan farið svo en hér er ein gömul af strákunum að hjálpa mér með lærdóminn


Ég sat á milli þeirra
Styttist í sýningu!!
fyrsta sýningin hans Elds í meistarflokki, það verður líka nóg samkeppni þar skyldist mér sem er auðvitað bara frábært!! Það eru svona ca. 2 og hálf vika í sýningu og nóg að gera hjá mér eins og venjulega!!Skólinn gengur mjög vel, ég var í geggjað skemmtilegum tíma í dag eða reyndar í gær þar sem það er tæknilega kominn fimmtudagur og ég ekki farinn að sofa usss
en allaveg þá var fyrsta krufningin í dýrafærðinni í gær. Við vorum að kryfja sandorm sem er mjög skondið fyrirbæri, þeir eru með 2 hjörtu og ýmislegt fleira. Ég fílaði þetta í botn og hlakka sko til að fá að kryfja eitthvað fleira!!! Ég gleymdi því miður myndavélinni en ætla sko pott þétt að muna eftir henni næst!Hvolparnir urðu 7 vikna á mánudaginn og þau eru sko meiri skæruliðarnir.... hehehe!! Það var þvílíkt fjör hjá þeim þegar ég kíkti á þau og þau eru öll með svo æðislegt skap
Ég tók því miður engar myndir en Kolla er dugleg að taka myndir svo endilega kíkið á síðuna hjá stelpunum ef ykkur langar að sjá myndir, http://ice.is/isabella/.Ég ver svo verð ég að monta mig í lokinn!! Ég á nebbla ekkert smá flotta sýningartösku núna
sem Berglind gerið!!
Ekkert smá flott!!!
Jæja komið fínt í dag, ég ætla að koma mér í rúmmið!!
Allir að muna að kvitta, mér finnst þið allt of löt við það!!
Myndir


Max kann sko hina ýmsustu leiðir til að það gangi betur að fá að drekka!!! Hann liggur sko þarna á bakinu á aftasta spenanum


Allir að hamast við að ná sem mestu!

Skjöldur!

Ég verð bara að viðurkenna að ég er ekki viss hvort þetta er Eyja eða Stúfur


Spike voða hiss á þessu öllu saman!!
Svo kom Katla skvís í smá heimsókn til mín í dag. Henni finnst heldur ekkert gaman að vera kjurr svo ekki gekk betur að taka myndir af henni en ég náði nokkrum.

Það er svo gaman að hlaupa....

Hún þurfti svo aðeins að siða pabba sinn
en honum fannst hún geggjað skemmtilegUm helgina eru smáhundadagar í Garðheimum og hvet ég alla til að kíkja þar við
þetta á víst að vera eitthvað voða flott!!Á laugardaginn verður líka myndin Beverly Hills Chihuahua forsýnd og það verur eitthvað voða fínt og flott, hundar á rauðum dregli og svo fara allir í bíó, híhí!! Ég fékk miða og hlakka ekkert smá til

Vonandi njótið þið vel og muni svo að kvitta!!
Skæruliðarnir orðin 6. vikna
Jæja þá eru þau orðin 6 vikna og hafa sko stækkað ekkert smá!! Ég fór í heimsókn á föstudaginn og gleymdi auðvitað myndavélinni eins og venjulega en ég fer fljótlega aftur og ætla að reyna að muna eftri henni þá. Stúfur littli er ekki lengur minnstur og Max er sko ekkert smá hress, hann var að togast á við okkur um dót á föstudaginn og ætlaði sko ekki að sleppa!!! Skjöldur var reyndar í frekar vondu skapi og vildi ekkert tala við okkur. Spike og Eyja sváfu frekar mikið en voru samt alveg til í að leika!!
Núna er bara sýning á næsta leiti!! Eldur og Frímann eru að sjálfsögu skráðir og ég er að fara að sýna Kötlu skvísu dóttur hans Elds. Það verður því rosa stuð hjá mér
Þetta verður bara að vera stutt núna, vonandi get ég sett inn myndir fljótlega
Ætla að láta þessa mynd fylgja með, Kolla tók hana þegar þau voru 4 og hálfs vikna!!