Auglýsing

Næsta hundasýning HRFÍ

Næsta sýning hjá Eldi

Næsta sýning hjá Harry

Könnun

Á ég að sækja um ræktunarnafn??

Styttist!!

15. febrúar 2009 klukkan 23:36
Já það styttist í sýningu, nú eru tæplega 2 vikur í hana og dagskráin kominn!! Mér finnst dagskráinn fín, tjúinn er á laugardagsmorguninn í hring 4 hjá Dan Ericsson, það hentar mér ágætlega að vera snemma. Það eru 40 tjúar skráðir, 9 snöggir og 31 síðhærður sem er frábær skráning!! Engin kreppa hjá okkurLaughing Eins og er þá er ég ekki að sýna neitt annað en tjúa svo ég verð bara í róleg heitunum!!

Í gær voru líka fyrstu vetraleikarnir í Gusti og ákvað ég að keppa bara til að vera með og hafa gaman!! Það hefði nú alveg mátt ganga betur, ég var í 5. sæti en ég er samt sátt ætlaði bara að vera með og hafa gamanSmile

Ég tók líka þá erfiðu ákvörðun að halda ekki hvolpi úr gotinu hans Elds núna. Ég er búin að vera lengi að hugsa þetta en þar sem ég verð úti í Finnlandi í 3 mánuði í sumar og því finnst mér ekki tímabært fyrir mig að halda hvolpi núna. Hvolparnir eru engu að síður æðislegir og hafa öll frábært skap enda kannski ekki við örðu að búast þar sem báðir foreldrar eru að mínu mati með fábært skap, bara pínu egó í gangiWink .... híhíhí!! Þau hafa auðvitað sína kosti og galla eins og hver einasti hundur en ég held að það verði mjög gaman að fylgjast með þeim þroskast!!!

Ég er því miður búin að vera mjög löt að taka myndir undan farið svo en hér er ein gömul af strákunum að hjálpa mér með lærdóminnLaughing
Eldur og Frímann
Ég sat á milli þeirraCool

Styttist í sýningu!!

12. febrúar 2009 klukkan 01:10
Jæja það styttist í sýningu og ég hlakka ekkert smá tilLaughing fyrsta sýningin hans Elds í meistarflokki, það verður líka nóg samkeppni þar skyldist mér sem er auðvitað bara frábært!! Það eru svona ca. 2 og hálf vika í sýningu og nóg að gera hjá mér eins og venjulega!!

Skólinn gengur mjög vel, ég var í geggjað skemmtilegum tíma í dag eða reyndar í gær þar sem það er tæknilega kominn fimmtudagur og ég ekki farinn að sofa usssUndecided en allaveg þá var fyrsta krufningin í dýrafærðinni í gær. Við vorum að kryfja sandorm sem er mjög skondið fyrirbæri, þeir eru með 2 hjörtu og ýmislegt fleira. Ég fílaði þetta í botn og hlakka sko til að fá að kryfja eitthvað fleira!!! Ég gleymdi því miður myndavélinni en ætla sko pott þétt að muna eftir henni næst!

Hvolparnir urðu 7 vikna á mánudaginn og þau eru sko meiri skæruliðarnir.... hehehe!! Það var þvílíkt fjör hjá þeim þegar ég kíkti á þau og þau eru öll með svo æðislegt skapLaughing Ég tók því miður engar myndir en Kolla er dugleg að taka myndir svo endilega kíkið á síðuna hjá stelpunum ef ykkur langar að sjá myndir, http://ice.is/isabella/.

Ég ver svo verð ég að monta mig í lokinn!! Ég á nebbla ekkert smá flotta sýningartösku núnaTongue out sem Berglind gerið!!
Taska
Ekkert smá flott!!!

Jæja komið fínt í dag, ég ætla að koma mér í rúmmið!!
Allir að muna að kvitta, mér finnst þið allt of löt við það!!

Myndir

05. febrúar 2009 klukkan 22:48
Jæja ég fór og kíkti á hvolpana í gær og þau eru öll algjör krútt. Ég mundi nú eftir myndavélinni en það gekk ekkert alltof vel að taka myndir þar sem skæruliðunum finnst ekkert spennandi að vera kjurr lengiLaughing
Hvolpar
Max kann sko hina ýmsustu leiðir til að það gangi betur að fá að drekka!!! Hann liggur sko þarna á bakinu á aftasta spenanumWink
Hvolpar
Allir að hamast við að ná sem mestu!
Hvolpar
Skjöldur!
Hvolpar
Ég verð bara að viðurkenna að ég er ekki viss hvort þetta er Eyja eða StúfurEmbarassed
Hvolpar
Spike voða hiss á þessu öllu saman!!
Svo kom Katla skvís í smá heimsókn til mín í dag. Henni finnst heldur ekkert gaman að vera kjurr svo ekki gekk betur að taka myndir af henni en ég náði nokkrum.
Katla
Það er svo gaman að hlaupa....
Katla og Eldur
Hún þurfti svo aðeins að siða pabba sinnWink en honum fannst hún geggjað skemmtileg
Um helgina eru smáhundadagar í Garðheimum og hvet ég alla til að kíkja þar viðWink þetta á víst að vera eitthvað voða flott!!
Á laugardaginn verður líka myndin Beverly Hills Chihuahua forsýnd og það verur eitthvað voða fínt og flott, hundar á rauðum dregli og svo fara allir í bíó, híhí!! Ég fékk miða og hlakka ekkert smá tilLaughing
Vonandi njótið þið vel og muni svo að kvitta!!

Skæruliðarnir orðin 6. vikna

02. febrúar 2009 klukkan 12:16

Jæja þá eru þau orðin 6 vikna og hafa sko stækkað ekkert smá!! Ég fór í heimsókn á föstudaginn og gleymdi auðvitað myndavélinni eins og venjulega en ég fer fljótlega aftur og ætla að reyna að muna eftri henni þá. Stúfur littli er ekki lengur minnstur og Max er sko ekkert smá hress, hann var að togast á við okkur um dót á föstudaginn og ætlaði sko ekki að sleppa!!! Skjöldur var reyndar í frekar vondu skapi og vildi ekkert tala við okkur. Spike og Eyja sváfu frekar mikið en voru samt alveg til í að leika!!

Núna er bara sýning á næsta leiti!! Eldur og Frímann eru að sjálfsögu skráðir og ég er að fara að sýna Kötlu skvísu dóttur hans Elds. Það verður því rosa stuð hjá mérLaughing
Þetta verður bara að vera stutt núna, vonandi get ég sett inn myndir fljótlegaWink
Hvolpar
Ætla að láta þessa mynd fylgja með, Kolla tók hana þegar þau voru 4 og hálfs vikna!!

Hvolpakrílin stækka og stækka!!

21. janúar 2009 klukkan 11:39

Já hvolpakrílin eru eiginlega hætt að vera kríli og verða miklu meiri krútt núna, þau eru orðinn 4 vikna og farin að labba svoldið um og leika sérLaughing Ég kíkti í heimsókn í gær og fékk að vera hjá þeim á meðan Kolla og Villa skruppu í búð!! Það var sko ekkert smá fjör og í þetta skiptið mundi ég eftir myndavél. Hvolpar
Mjólkurbarinn opinn!!! Allir að drífa sig að komaTongue out
hvolpar
Max og Spike að leika sér!!
hvolpar
Stúfur, Eyja og Skjöldur
hvolpar
Hey þú!!!
hvolpar
Ohh það er svo gott að teygja sig!!
hvolpar
Eyja og fleiriLaughing
hvolpar
Skjöldur og Stúfur að slást!!
hvolpar
Hey hvað er þarna???
hvolpar
Skjöldur var sko duglegur að fara í skoðunarferðir!!
hvolpar
Á meðan sváfu Stúfu, Eyja og Spike bara!!!
hvolpar
En Skjöldur og Max skemmt sér mjög vel að gera allt annað en að sofa!
hvolpar
Er þetta ætt???
hvolpar
En þetta??
hvolpar
Allir saddir og ánægðir!!
hvolpar
Ohhh það er svo gott að sofa!!
Jæja þetta er orðið fíntLaughing 
Njótið nú vel og munið að skráningarfresturinn á vorsýningu HRFÍ rennur út 30. janúar!!!

2009 komið!! Mynd komin!!!

12. janúar 2009 klukkan 01:58
Loksinns kem ég mér í að blogga!!! Er búin að ætla að henda hérna inn smá bloggi í nokkra daga en hef ekki komið mér í þaðUndecided 

Leti og lúxus líf jólafrísins er víst búið og við tekur skólinn. Ég tók þá ákvörðun í jólafríinu að verkfræði væri bara alls ekki mitt fag, ég var alveg að mygla í allri þessari stærðfræði!!! Þá tók við hausverkurinn að finna út hvað ég vildi þá læra því ekki fannst mér í boði að fara að vinna, ekki mikla vinnu að hafa hugsa ég á þessum síðustu og verstu. Á endanum komst ég að þeirri niðurstöðu að af þeim námsleiðum sem opnar væru fyrir mig á vorönn þá væri líffræðin svona það sem ég hefði mestann áhuga á að læra. Ég vona bara að mér gangi betur með þetta nám en verkfærðina!!!

Hvolparnir þeirra Elds og Ísabellu braggast vel, litli Stúfur en loksins farinn að taka almennilega við sér en það gekk svoldið hægt hjá honum til að byrja með. Ísabella stendur sig mjög vel í móðurhlutverkinu og er alltaf jafn glöð að sjá mig þegar ég kíki í heimsókn. Ég gleymdi því miður myndavélinni í kvöld þegar ég kíkti í heimsókn en ætla að reyna að muna eftir henni í næstu heimsókn.
Það styttist líka í næstu sýningu, 48 dagar í hana. Við Eldur mætum vonandi galvösk í meistaraflokkinn og auðvitað ætlum við Frímann að mæta!! Ég fæ svo að sýna dóttur Elds og Pílu, hana Kötlu skvísu og reikna ég með 1 eða 2 snásum þangað til annað kemur í ljós. Þannig að það verður bara rólegheita líf hjá mér vonandi eða svona eins rólegt og það verður með sýningu, hest á húsi og svo í skólanumTongue out
Jamm hlunkurinn hún Sif mín kom á hús um miðjan desember og var kominn upp í Gust 30. des. járnuð og tilbúin til útreiða, ja eins tilbúin og hún verður miðað við að vera í feitari kanntinum en það sýnir bara að hún hefur haft það virkilega gott í haust sem er æðislegtSmile Mér finnst það þvílíkur munur að geta farið upp í hesthús og dundað mér þar ef ég hef tíma!!

Í augnablikinu þá nenni ég ekki að koma mér í rúmið, sem er ekki mjög sniðug hugmynd en það skiptir svo sem ekki neinu máli. Eldur og Frímann liggja eins og klessur hjá mér upp í sófa, dauðþreyttir eftir daginn í dag. Við voru svo ekkert smá dugleg og fórum í 2 göngur, svo fór ég með Eld í sýnignarþjálfun. Ég þarf aðeins að vinna í stráknum mínu, var ekki alveg nógu sátt með hann á síðustu sýningu svo við ætlum að æfa okkur meira núna og vita hvort það lagast ekki. Frímann ætlar svo að koma með næst og þá ég vonandi verið með Eld helminginn og Frímann hinn helminginn.

Jæja þá er þetta komið í bili og svo allir að muna að kvittaWink

Kolla var svo æðislega að leifa mér að setja eina af myndunum sem hún tók hér inn!!
Hvolpar
Þau eru í réttri röð frá vinstri
Fleiri myndir inn á síðunni hennar Kollu.

Árið 2008!!

31. desember 2008 klukkan 21:10

Jæja þá er árið 2008 að verða búið!! Ótrúlegt hvað árið hefur liði hratt og margt búið að gerast á því. Ég ætla að skrifa stutta saman tekt á því hvað var eftirminnilegastLaughing
Janúar
Í byrjun janúar tóku við Eldur þátt í hundaidoli B&L, Eldur söng sinn fallega söng og var valinn mesta krúttið.
Janúar fór svo aðalega í æfingar fyrir deildarsýninguna sem var lok janúar en þá voru Chihuahuadeildin og Terrierdeildin með sameiginlega deildarsýningu. Þetta var fyrsta sýning okkar þar sem var dæmt eftir nýju kerfi, þar sem það var ekki gefin 1. einkun, 2. einkun o.s.f. heldur var farið að gefa excellent, very good, good og svo framvegis. Eldur fékk ex. meistarefni og varð 3 besti rakki tegundar.
Eldur
Febrúar
Febrúar byrjaði á Nemó, þetta var síðasta Nemóið mitt og á ég örugglega eftir að sakna þess. Svo tóku bara við æfingar fyrir marssýningarnar. Alveg á síðustu stund fékk ég snása að sýna, hana Orku. Það var líka nóg að gera í kaflaprófum í skólanum.
Mars
Mars byrjaði á sýningu, þar sem ég sýndin Eldinn minn að sjálfsögðu. Hann fékk ex. og meistarefni og endaði svo sem 2 besti rakki tegundar á eftir Mána hálfbróður sínum með sitt fyrsta íslenska meistarstig og mjög góðan dóm. Ég hjálpaði svo Ástu Maríu með Griffonana þar sem Robbi hennar varð besti rakki tegundar með íslenskt og alþjóðlegt meistarstig. Ég sýndi svo hana Orku og fékk hún ex. meistaraefni og endaði í 3 sæti í sínum flokki af 9 tíkum.
Næst var svo ístöltskeppnin Svellkaldar konur sem haldinn var í Skautahöllinn í Laugardalnum og ákvað ég að slá til og taka þátt. Það gekk bara svona glimmrandi vel að ég endaði í 8. sæti í mínu keppnisflokki.
Eftir ístölts helgina fórum við Berglind til Finnlands og ætluðum að sækja þar hund en þegar út var komið þá tókum við þá ákvörðun að taka hann ekki heim með okkur en ferðin út var engu að síður mjög skemmtileg og áhugaverð.
Páskarnir voru líka í mars og systa litla fermdist og ég borðaði yfir mig af páskaeggjum.
Eldur
Apríl
Í apríl var nóg að gera í hundagöngum og hestamensku. Ég keppti á nokkrum hestamótum og gekk svona misvel en besti árangurinn var 2. sæti í Firmakeppinni.
Í lok apríl var svo Galakvöldið í Versló en þá skemmta útskirifanemar sér með kennurunum áður en lokapróinn hefjast.
Sif
Maí
Maí byrjaði á því að fystu hvolparnir hans Elds fæddust. Þetta voru verkalýðshvolpar fæddir 1. maí og fengur nöfn eftir því í ættbók en þau heita Ljóna Kolku Bríet, Jaki og Hannibal.
Ég kláraði líka síðustu prófin mín í Versló.
Við Berglind fórum aðra ferð til Finnlands að sækja ein lítinn vitleysing. Við fengum að fara á hundasýningu úti og ég fékk að sýna 2 hunda!
Þegar ég kom heim frá Finnlandi tók við undirbúiningur undir útskriftina mína og útskrifaðist ég ásamt fullt af öðrum með pommi og prakkt frá Verzlunarskóla Ísland þann 24. maí.
Ég byrjaði svo sumarvinnuna mína í Álverinu 26. maí.
Píla
Ég og Eldur
Júní
Í júní fór ég í endajaxlatöku daginn sem Frímann losnaði úr einangrun. Litli vitleysingurinn mætti hress og káttur hingað heim og kunni bara ágætlega við sig held ég.
Í lok júní var svo sumarsýningin og þar sýndi ég báða gaurana mína. Eldur fékk ex., meistarefni og varð besti rakki tegundar með annað íslenska meistarastigið sitt, hann gerði svo enn betur og varð best hundur tegundar og að lokum þá náðum við þeim frábæra árangri að verða svo í 3. sæti í tengunarhóp 9. Frímann keppti í hvolpaflokki og varð besti hvolpur tengundar 6.-9. mánaða. Himna ræktunarhópurinn varð svo annar besti ræktunarhópur dagsinns. Danni og Dínó toppuðu þetta enn betur og urðu í 1. sæti í tegundarhópnum og svo í 4. sæti í Besti hundur sýningar!

Eldur
Júlí
Í júlí tók heimssýninginn við, við héldum til Svíþjóðar á miðvikudegi og komum heim á þriðjudegi. Þetta var mjög skemmtileg ferð og fannst mér toppurinn vera útisýningin sem við fórum á á laugardeginum, það var ekkert smá gaman að stitja úti í glampandi sól og blíðu og horfa á fullt af hundum. Ég verslaði líka fullt og skemmti mér bara mjög vel, þetta var frábært upplifun sem verðu sko pott þétt endurtekinn aftur.
Ég fór svo norður í ættarmót og skemmtu stákarnir sér vel í sveitinni. Eldur varð 2 ára 21. júli, loksins orðinn fullorðinn litli stubburinn minn. Ég fór líka á ræktunarnámskeið og skemmti mér mjög vel.
Ágúst
Ágúst er afmælismánuðurinn minn og ég varð tvítug núna í ágúst. Eftir afmælið mitt leið ágúst eiginlega bara við vinnu og vaktafrí þanað til skólinn byrjaði. Ég byrjaði svo í Háskólanum 26. ágúst.
Frímann
Eldur
September
Í byrjun september þá keypti ég mér bíl, bláan ´99 árgerð af Yairs. Svo tóku við æfingar fyrir næstu sýningu og nú var ég kominn með slatta af hundum til að sýna, 2 snása, 1 cavalier og svo mína 2. Það var því nóg að gera í að æfa allan skarann og vera í skólanum. Það þurfti svo auðvitað að hittast þannig á að snásinn og cavalierinn var á sama tíma svo að ég þurfti að redda annari manneskju til að sína hann Daða og gerði Ásta María það. Það gekk ágætlega með Orku og Flækju, Orka fékk very good þar sem feldurinn hennar var ekki í nógu góðu lagi en Flækja litla sem var bara í hvolpaflokki stóð sig mjög vel og varð besti hvolpur tegundar 6.-9. mánaða og gerði svo enn betur og varð í 4 sæti í besti hvolpur dagsins.
Ég sýndi svo strákana mína. Eldur fékk ex., meistarefni og 1. sæti í sínu flokki, hann varð svo annar besti rakki með sitt síðasta íslenska meistarstig, vara alþjóðlegt og var með því orðinn íslenskur meistari. Umsögnin hans Elds var frábær, lýsir honum mjög vel. Frímann var á sinni fyrstu sýningu ekki í hvolpaflokki og stóð sig mjög vel, hann fékk very good,  heiðursverðlaun og mjög flotta umsögn.
Eldur
Október
Október tók svo við með lærdómi og miðmisserisprófum. Eldur fór í augnskoðun og kom mjög vel út úr henni, engin athugasemd gerð við augun hans. Ég fór líka á framhaldsræktunarnámskeið og fannst það mjög gaman. Í október voru Eldur og Ísabella pöruð.
Eldur og Ísabella
Nóvember
Laugavegsganga HRFÍ var í byrjun nóvember og um kvöldið var gleðinn. Chihuahuadeildinn var í ár með fordrykk fyrir gleðina þar sem stigahæstu hundar ársins voru heiðraðir. Litli stubburinn minn hann Eldur varð stigahæsti síðhærði tjúinn og Dínó varð stigahæsti snögghærði tjúinn. Ég þakka kærlega fyrir falleg orð sem voru flutt um mig í tilefni af því.
Ég fékk að fara með þegar Ísabella fór í sónarinn og það var mjög gaman að fá að sjá litlu baunirnar í maganum á henni.
Frímann vitleysingur varð líka 1 árs þan 30. nóvember.
Frímann
Frímann
Frímann
Desember
Í desember byrjaði próflestur, þótt að ég hafi nú ekki verið alveg sú duglegasta og einkanirnar eftir því þá voru þetta fyrstu háskólaprófin mín og ágæt að vera búin með þau.
Hrossið mit kom á hús, reyndar til að byrja með upp í Mosó en er núna kominn í Kópavoginn.
22. desember fæddust hvolparnir, 5 kríli komu í heiminn á rúmlega 2 tímum og án nokkura vandræða, 4 rakkar og 1 tík.
Ísabella

Jæja þá er þetta komið held ég!! Munið að kvitta!!
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamal!!

Hvolpar fæddir!!!

24. desember 2008 klukkan 00:53
Jæja loksins hef ég smá tíma til að skella þessu hérna inn!!
Það eru sem sagt fæddir hvolpar, þeir fæddust í gær, 22. desember og voru þetta 5 stykkiSurprised ég var sko ekki lítið hissa þegar ég heyrið í Kollu. Ég bjóst við svona 3 kannski 4 en ekki 5 og þar af 4 rakkar og 1 tík!!!
Nr. 1
Hvolpur nr. 1, rakki fæddur 115 gr. Hann er með hvíta týru í skottinu og verður líklegast með hvíta blesu.
Nr. 2
Hvolpur nr. 2, rakki fæddur 144 gr. Hann er líka hvítur á maganum og kannski eitthvað hvít í framan.
Nr. 3
Hvolpur nr. 3, rakki fæddur 97 gr. Þið sjáið nú bara litinn, ég get ekki bætt neinu við þaðWink
Nr. 4
Hvolpur nr. 4, rakki fæddur 84 gr. Hann er líka með hvíta týru í skottiu en sýnist ekki vera mikið hvítur í framan.
Nr. 5
Hvolpur nr. 5, tík fædd 108 gr. Hún er líka með hvíta týru í skottinu og eitthvað smá hvít í framan. Af sakið léleg myndgæði en Ísabella var orðin pínu órónlega svo ég vildi ekki vera að vesenast meira með litlu skottuna hennar!!
Hvolparnir fæddur á rúmlega 2 klst. og eru öll hraust núna. Það var eitthvað tvísýnt með litla greyið til að byrja með en hann er allur að braggast.
Þau eru öll rosalega bleik á nefinu og í framan svo ég er ekki alveg viss hver verða með hvít eða ljóst framan í sér en þetta er miðað við eins og mér fannst þau vera í dag!!
Ísabella
Ein í lokinn af Ísabellu með allt stóðið!! Hún er sko duglega mammaLaughing
Njótið vel!!!


Ég ætla svo líka bara að óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs!!! Vonandi hafa allir það gott um hátíðirnarLaughing
Eldur og Frímann
Eina af strákunum í lokinn!!

Jólafrí!!!

17. desember 2008 klukkan 21:14

Elsku besta jólafríið mittLaughing já ég er sko kominn í jólafrí!!! Er ekkert smá feginn að vera búin með prófinn, svo tekur bara við að bíða eftir einkununm, kaupa jólagjafir, þrífa og skreyta!!! Vííí það eru 7 dagar í jólinn!!!
Ég kíkti í heimsókn á Ísabellu bumbulínu á mánudaginn og það fer bara alveg að líða að þessu!! Ég hlakkar svo til maður að ég er að deyja!!! Hér eru nokkar myndir af skvísunni! (Ég vona að það hafi verið í lagi að ég stal einni mynd af síðunni þinn KollaTongue out þar sem ég gleymdi myndavélinni)
Ísabella
Þessi mynd er tekinn á mánudaginn 15. des!!
Ísabella
Þessa tók ég föstudaginn 5. des!!
Ég sé allaveg þvílíkann mun á henni, vonandi sér það einhver annar líka!!
Annars er svo sem ekki mikið meira að segja frá!! Læt bara fylgja með nokkrar myndir sem ég tók í próflærdómnum!!
Frímann
Frímann þreytti!!
Eldur
Eldur fann sér sko nýjan stað að liggja á, alveg viss um það að hann væri að hjálpa mér að læraWink
Eldur

Honum finnst þetta sko hinn fínasti staður!!
Eldur og Frímann
Þar sem þeir vilja alltaf vera báðir í fanginu á mér en Eldur vill samt eiginlega ekki hafa Frímann þar líka þá er þetta bara hin fínasta lausn!!
Jæja allir að muna að kvitta!!

Ég er löt, þeytt og eitthvað skríinn þessa dagana!!!

14. desember 2008 klukkan 22:24
Já ég er sko löt, ég nenni ekki að læra fyrir prófin sem ég er að fara íFrown ég er nú eiginlega búin að sjá það út að verkfræði er ekki alveg að gera sig fyrir mig og þá nenni ég bara ekkert að læra fyrir þessi próf!!! Ég hef hinst vegar enga hugmynd um hvað ég vil læra..... jú jú mér dettur ýmislegt í hug en ekkert sem ég fæ svona tilfinningu já þetta langar mig að læra, mér finnst allt saman jafn spennandiUndecided æji jæja ég get eitt jólafríinu í að hugsa þetta!!
Ég er búin með 2 próf og á 2 eftir, ég verð svo feginn þegar þau verða búinn. Ekki það að ég sé eitthvað rosalega dugleg en þetta liggur samt alltaf yfir manni og manni finnst að maður eigi að vera að læra ef maður er ekki að því.
Ég er líka búin að vera eitthvað voða skrítinn síðustu vikurnar, mikið þreytt þó ég sé að sofa 8 til 10 tíma á nóttu þá er ég samt mjög oft alveg að sofna ofan í bækurnar mínar yfir daginn.  Reyndar sumar nætur er ég kannski ekki að sofa nema 3 tíma því ég er í stress kasti útaf prófi daginn eftir en mér finnst ég samt vera eitthva svo uppgefinn og eins og undinn tuska. Ég hlakka sko ekkert smá til að komast í jólafrí og er eiginlega bara feginn að vera ekki að fara að vinna í því!!
Það er annars ekki mikið að frétta, það styttist óðum í hvolpana hans Elds!! Það eru bara ca. 10 dagar eftirLaughing
Ég er bara búin að kaupa ein jólagjöf svo hinar vera keyptar eftir síðast próf ásamt því að þrífa eitthvað og svona!!
Það eru bara 10 dagar í jólinn, 3 jólasveinar komnir til bygðaLaughing
Munið að kvitta!!

Klukkan

Innskráningar kubbur