Pensilín og próf!!
Jæja þá er ég kominn á pensilín vegna ennis og kinnholu sýkingar!! Ég ætlaði að fara til læknis á mánudaginn en þegar ég hringdi til að panta tíma hjá lækninum mínum þá komst ég að því að það það var allt uppbókað út vikuna og hún benti mér bara á læknavaktina svo ég fór nú eiginlega í fýlu og ákvað að ég þyrfti ekkert til læknis. Mamma rak mig síðan af stað í kvöld til læknis svo ég fór á læknavaktina og fékk bara mjög fínan lækni sem sagði að þetta lýsti sér alveg eins og ennis og kinnholu sýking svo hann skrifaði upp á pensilín handa mér. Ég fékk voða fínar gular og rauðar töflur sem ég virki því ég er alveg kominn með nóg af þessum hósta og raddleysinu!!
Fyrsta prófið mitt var í dag en það gekk eiginlega bara frekar illa
þá verður maður bara að stýpa í lófana og vera duglegri að læra fyrir næstu 2 próf til að ná þeim. Ég er frekar löt þessa dagana og þjáist af einbeitingar leysi sem hentar ekkert sérstaklega vel í próflærdómnum.
Fyrir 3 vikum síðan þá ákvað ég að prófa nýtt fóður. Nýtt fóður á markaðnum sem er framleitt af Hundahreysti og er þetta ferskfóður. Eldi og Frímsa finnst þetta geggjað!!! Þeir sko stoppa ekki á meðan ég er að hafa þetta til fyrir þá á morgnana en þeir fá hálfan dagsskammt á morgnana af hundahreystis fóðrinu og svo fá þeir þurrfóður á kvöldinn þar sem ég á svo mikið af þurrfóðri. Ég fer nú samt bráðum að skipta þeim alveg yfir á hundahreystis fóðrið því ég er mjög ánægt með þá á þessu. Að vísu þá er Eldur búin að þyngjast frekar mikið. Ég er nú samt búin að segja það oft að ég vil miklu frekara þurfa að passa hvað hundurinn borðar mikið heldur en að þurfa að troða matnum ofan í hundinn svo hann sé ekki alltaf of mjór!!! Ég stend sko alveg við þetta þegar ég er kominn með hund sem tók upp á því að fara að fitna
Frímann er líka að taka þessu rosalega vel, hann þyngist jafnt og þétt
Jæja ætli þetta sé ekki orðið gott núna, það styttist í Finnland eða bara 18 dagar!!!
Mér þætti líka voða vænt um að fólk væri duglegra að kvitt, miðað við teljarann á síðunni þá eru miklu fleiri sem skoða síðuna en þeir sem eru voða duglegir að kvitta!!
Hálsbólga, Kvennatölt og hundafimi!!
Það bregst ekki að ég fæ annað hvort eða bæði hálsbólgu og kvef rétt fyrir próf!!! Ég er kominn með hálsbólguna og bíð bara eftir að kvefið bætist við. Ég vakna alltaf þessa dagana og get varla talað en svo lagast þetta nú þegar líður á daginn! En talandi um próf, þá nálgast þau óðum og ég svo löt að læra..... með þessu áfram haldi þá fell ég í öllu svo ég verða að fara að taka mig á. Ég held að ég sé kominn með skólaleiða eða ég veit ekki hvað er að mér því mér finnst námsefnið ekki leiðinnlegt, mér finnst bara hundleiðinnlegt að þurfa að læra fyrir próf. Ég veit líka ekkert hvað ég vil læra, mig langar ekkert til að þurfa að ákveða strax hvað ég vil verða
mér finnst tíminn líða alltof hratt og ég veit ekkert hvað mig langar að gera í lífinu!!! Jæja það þýðir nú samt ekki að væla yfir því.....
Ég verð nú að ræða um aðra hluti!! Eitthvað skemmtilegra
Kvennatölt Gust á laugardaginn og ég tók að sjálfsögðu þátt, enda er þetta árlegur viðburður sem ég stefni alltaf á að taka þátt í!! En allavega, þá voru um 140 konu skráðar til keppni í 4 flokkum (byrjendur, minnar keppnisvanar, meira keppnisvanar og opinn flokkur) ég var skráð í minna keppnisvanar. Sif er búin að vera í rosalega skemmtilegu stuði hjá mér undanfarið og það hefur verið mjög gaman að fara á bak á henni. Þannig að ég hlakkaði mjög mikið til að keppa og fá einkun á hana en hún er að mínu mati í sínu besta formi hingað til og vonandi á hún bara eftir að toppa sig
Allavega þá mættum við galvaskar til keppni og þetta gekk svona glymrandi vel, við fengurm 5,33 í aðaleinkun og enduðum í 11-12. sæti af 36 keppendum í okkar flokki og er ég mjög sátt með þann árangur. Ég horfði svo á restina af forkeppninni og líka á úrslitinn þannig að ég var ekki kominn heim fyrr en kl. hálf 12 í gærkvöldi og var gjörsamlega uppgefinn!!
Í gær var ég svo frekar löt, svaf mikið og læri eiginlega ekki neitt
en ég ákvað svo að kíkja á hundafimina. Ég fór að horfa á Ásta Maríu, Sillu, Berglindi, Danna, Klöru og Margréti tjúa fólk sem voru að byrja á hundafiminámskeiði í dag og voru þau ekkert smá flott inn á vellinu. Ég og Frímann hefðum byrjað í dag ef ég væri ekki að fara til Finnlands, því námskeiðið er bara hálfnað þegar ég fer út þannig að það gekk ekki alveg upp en við stefnum á að fara í haust og ég hlakka mjög mikið til. Ég ákvað svo að skella mér í opna tímann með Eld og athuga hvernig honum finndist hundafimi núna, honum hefur nebbl ekki fundist hún neitt skemmtileg eftir að hann klára námskeiðið fyrir tæplega 1 og hálfu ári síðann. En Eldur kom mér svona svakalega á óvar í kvöld og var bara nokkuð góður miðað við hvernig hann var síðast þegar ég fór og ég hugsa að við mætum bara aftur næst ef ég man eftir því!!
Jæja ég held að þetta sé komið gott hjá mér núna, ætla að fara að drífa mig í bólið!!
Svo verða allir að vera duglegir og kvitta!!!
Gleðilega páska!!
ég er sko búin að borða vel yfir mig af stóra stóra páskaegginu mínu og málshátturinn minn var Betur vinnur vit en strit.Síðustu dagar hafa veið æðislegir og alls ekki farið í lærdóm

Á miðvikudagskvöldið var páskabingó hjá Chihuahua deildinni, mér fannst þetta geggjuð hugmynd og heppnaðist kvöldið mjög vel. Ég held að það hafi mætt um 30 manns og Sólheimakot var alllt of lítið fyrir okkur öll. Það var fullt af glæsilegum vinningum og ég sem hef aldrei hef unnið neitt í bingói labbaði út með 3 vinninga

Ég er búin að vera rosalega dugleg að labba undan farna daga, sérstaklega lausagöngur!! Búin að fara upp í Sólheimakot og í dag fórum við úta á Seltjarnarnes og löbbuðum í fjörunni á meðan pabbi dundaði sér við að taka mynir af fuglunum og kannski nokkrar af strákunum sem ég fæ örugglega við tækifæri. Eldi og Frímanni fannst þetta geggjað stuð að fá að hlaupa í sandinum og eru búnir að liggja rotaðir síðan við komum heim.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna!!
Allir að muna að kvitta!!
Kominn tími á blogg???
Það er búið að vera nóg að gera undan farið!! Þótt ég sé nú ekki mjög duglega að læra þá finn ég mér bara eitthvað annað að gera!!
Fyrir 2 vikum síðan þá keyrði ég austur og horfði á keppni í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS. Það var sko bara mjög gaman, sérstaklega þar sem ég er búin að vera að læra mikið af þessu á knapamerkinu þá er gaman að sjá atvinnumennina gera þetta næstum fullkomlega
Annars gengur bara vel á knapamerkinu, ég þarf að æfa mig í að vita hvora skástæðuna ég er að stíga á brokki!! Á víst að líma einhvern skæranlímmiða á hrossið til að sjá þetta almennilega
veit nú ekki alveg hvort ég geri það en ætla allavega að æfa mig meira en ég hef verið að gera!!Svo ég vaði nú úr einu yfir í annað þá er ég búin að kaupa miða til Finnlands!!! Jibbý bara 46 dagar í þetta!!! Ég flýg út 18. maí og kem heim aftur 17. ágúst. Ég ætlaði alltaf að koma heim svo á hundasýninguna sem er í júní en þar sem flugið er ekkert sérstaklega ódýrt þá ákvað ég að sleppa því en ég mæti hress á afmælissýninguna og hlakka sko rosalega til!!
Ég fór með Frímann til dýra í dag, í árlega bólusetningu, heilbrigðis- og hnéskeljaskoðun. Hann stóð sig bara þvílíkt vel og bræddi næstum dýralækninni
nei ég segi svona!! Hnéskeljarnar hans eru pik fastar og það heyrðist ekkert að hjartanu í hlustun
þannig að við löbbuðum sæl og ánægt út frá dýra!!Ég var svo að dunda við að taka uppstillimyndir í gær og náði nokkrum bara nokkuð góðum sko!! Læt þær fylgja með hérna í lokinn!!
Meistarinn minn

Frímann sæti, loksins kominn fín mynd af honum í staðin fyrir einhverja hvolpamynd

Frímann sæti sæti aftur!!
Það styttist í páskan, 10 dagar og ég er búin að kaupa mér páskaegg, sem er rúmlega 900 gr.

Svo er ég búin að vera að dunda við að uppfæra undirsíðurnar svo endilega kíkið reglulega á þær, hver veit nema eitthvað nýtt sé komið síðan þið kíktuð síðast!!!
Jæja og svo muna allir að kvitta er það ekki!!
Týnda bloggið!!
setti hana inn í gær og svo ákvað ég að kíka hér inn núna og þá sá ég bara gömlu myndafærsluna.Ég var búin að setja inn blogg með flut að myndum!!!
Kannski er bloggið mitt í partýi með hluta af tölvunni minni, tölvan mín er farin að taka upp á því að allt í einu verður skjárinn bara svartur og ég get ekki gert neitt, verð að slökkva á henni og kveikja aftur til að geta gert eitthvað

En jæja ég ætla að setja þessar myndir inn aftur og athuga hvort þær tolli hérna núna!!
Já erum við skyld eða hvað??
Að njót lífsins

Víííí mér finnst svo gaman að vera til!!!
Alveg lýsandi myndir af Frímanni

Á meðan Eldur er rosaduglegur að pósa!!
Frímann getur það nú alveg en honum finnst það ekki jafn gaman og a hlaupa!!!!
Ef að það er haldið á manni þá er þetta nú alveg hægt!!
Þeir félagar að horfa á eitthvað í fjarska!!
Jæja ég vona að þetta tolli inn!!
Njótið vel og munið að kvitta!!
Fleiri myndir
Ég ákvað að taka þátt í vetrarleikunum sem voru upp í Gusti á laugardaginn og endaði þar i 5. sæti! Ef það skellti ég mér svo í rosa fína göngu með strákana mína í þvílíkt góðu veðri og ég mundi eftir myndavélinni
tók auðvitað eitthvað af myndum en á eftir að setja þær inn.Annars em ekki mikið að frétta þessa dagana, handboltamót um næstu helgi hjá stelpunum sem ég er að þjálfa og ég man ekki eftir neinu örðu sem er á dagskránni nema að fara að vera duglegri að læra

Þannig að eg verð örugglega ekki mjög dugleg að blogga nema kannski að skella inn myndum!!
Hér eru myndir sem ég tók í síðustu viku þegar það var þvílíkt mikið gluggaveður og strákarnir nutu þess að liggja í sólbaði inni!!
Varúð myndaflóð!!!













Sætustu sætustu strákarnir mínir

Jæja allir að muna að kvitta og að kjósa í könnuninn ef þið voruð ekki búin að því!!
Sýningarmyndir!!
Ég og Eldur að koma inn í hring

Á borði, Eldi fannst dómarinn æðislegur eins og venjulega!!
Og svo standa ekki bara spjalla við dómarann!!
Rass

Mér finnst þessi mynd æðisleg þótt ég segi sjálf frá

Óþekki strákurinn minn!!
Rakkarnir sem kepptu í besti rakki tegundar!
Eldur í 3. sæti!
Ég og Katla skvís!
Svo fín á borðinu!!
Rass

Katla í 1. sæti í ungliðaflokk með excellent og meistaraefni!!
Tíkurnar sem kepptu í besta tík tegundar!!
Katla fína fína!
Bestu hundar tegundar í síðhærðum, ISCH Himna Sól og ISCH Himna Ripp!
Himna ræktunarhópurinn varð besti ræktunarhópur dagsins

Frímann byrjaði voðalega vel
gólfið mun áhugaverðara og mátti ekki vera að því að labba en við ætlum bara að mæta enþá hressari næst
Rosalega duglegur á borði!!
Þetta er ekkert gaman.... nammið er svo langt í burtu!!
Voða duglegur!!
Bestu hundar tegundar í snöggum, ISCH Perluskins Casper Dínó og ISCH Sörlaskjóls Fíola Ísadóra Amandas!
Afsakið myndaflóðið
ég bara varð!!Vonandi höfðuð þið gaman af að skoða og munið svo að kvitta!!!
Ef ykkur lagar að sjá fleiri myndir þá er hægt að skoða þær hér: http://picasaweb.google.com/anngud88/VorsyningHRFI2009#
Sýningin búin!!
Eldur var í fyrsta sinn skráður í meistarflokk og stóð hann sig rosalega vel. Hann fékk excellent, 2. sæti í meistaflokki og verðugur meistari. Hann varð svo í 3. sæti í besti rakki tegundar, með mjög fína umsögn.
Very nice dog. Good head. Nice body. Good front. Would prefer better hind angulation. Nice tail. Moves a little wide in front. Very nice coat. Excellent.
Frímann var skráður í ungliðaflokk. Honum gegg ágætlega, hefði mátt vera minna upptekinn af teppinu en hann hafði ekki tíma til að labba því hann vildi svo mikið þefa af teppinu
hann fékk very good og annað sæti í ungliðaflokk en hann fékk mjög fína umsögn.Very nice head. Good neck and shoulder. Good legs and feet. Too arched in the loin today and stepping high in front. Nice tail which should be carried higher. Needs more time. Very good today.
Katla dótti hans Elds var sýnd í fyrsta sinn og stóð sig frábærlega, hún fékk excellent, 1. sæti í ungliðaflokk og meistaraefni en fékk ekki sæti í besta tík tegundar.
Moli sonu hans Elds var líka sýndur, hann fékk excellent og 1. sæti í sínum flokk, var að vísu bara 1 í flokk, hann fékk líka góða umsögn.
Það var svo sýndur Himna ræktunarhópur, Eldur tók þátt í honum og varð Himna ræktunarhópurinn ræktunarhópur laugardagsins með alveg hreint frábæra umsögn.
Ég náði að plata pabba í það að taka myndir af tjúanum á sýningunni og eru þær myndir núna komnar inn á tölvuna mína og bíða bara eftir því að ég fari í gegnum þær almennilega og svo reikna ég með að þær komi einhversstaðar á netið!!
Ég ætla svo að óska öllum til hamingju með þeirra árangur og þakka kærlega fyrir mig og mína

Ég vil svo í lokinn votta Önnu Jónu alla mína sammúð, það var hræðilegt að heyra af þessu slysi. Þarna fór ungur og lofandi hundur allt of snemma!!!
Hundar gera okkur að betri mönnum.
Það er allt gott að frétta af hvopunum, þau eru að verða 9 vikna á morgun. Max og Spike eru komnir með heimili, Spike kemur til með að heita Dreki en ég veit ekki hvort þau ætla að kalla Max eitthvað annað! Svo það er bara hann Skjöldur sem á eftir að fá heimili!!
Kolla og Villa komu í heimsókn til mín í gær með Ísabellu og hvolpana, það var sko þvílíkt stuð hérna með 5 litla skæruliða hlaupandi um
pabbi var rosaduglegur að taka myndir og ég er búin að setja þær inn á facebook en læt nokkrar vel valdar fylgja með hér!!
Allir þreyttir eftir allt fjörið!!

Skjöldur og Dreki

Skjöldur

Eyja skvísa!!

Dreki
Ég setti inn nýja könnun um daginn og þið megið endilega kjósa!! Langar að vita hvað ykkur finnst

Veriði nú dugleg að kvitta!!
Eldur músaskelfir!!!
Bara sma fíflagangur í mér
en við hittum sem sagt mús í göngutúrnum okkar í kvöld. Eldi var vinsamlegast bent á hana og honum fannst þvílíkt stuð að elta hana
ekki víst að músinni hafi fundist það eins gaman en það er annað mál. Hann svo sem gerði henni ekki neit nema að þefa af henni og elta þangað til hún hljóp í skjól undir gangstéttasteinum!! Þá varð hann mjög hissa og hljóp þefandi um allt, litla þefdýrið mitt
og fannst þetta nú eiginlega bara svild að hún skildi vera farinn.Varð bara að deila þessu!!!
Munið svo allir að kvitta, það er fullt af heimsókun en bara örfáir sem kvitta, alveg nóg að skrifa bara kvitt kvitt