Komið í lag!!
Já loksins er þetta komið í lag, ég var orðin frekar pirruð á þessu!!
Ég er ein að dunda mér inn í tölvustofu þar sem snillingurinn ég labbaði út í morgun á leiðinni í efnafræðipróf og steingleymdi leikfimisfötunum
Ekki það að mér hafi langað eitthvað sérstaklega í leikfimi en....
Ég var sem sagt í prófi í lífrænniefnafræði áðan og gekk bara mjög vel, loksins
Því ekki gengu prófin í síðustu viku neitt sérlega vel![]()
Helgin var ekki alveg eins þétt skipulögð og sú síðasta en ég hafði samt nóg að gera!!
Byrjaði á að fara að þjálfa eins og venjulega á milli hálf 4 og 6 svo fór ég á Kvennó-MH í Gettu betur þar sem Þórdís vinkona var í Kvennó liðinu!! Hún stóð sig frábærlega skvísan og reyndar liðið allt, frábær endurkoma!! Vera 6 stigum undir og ná að jafana og komast í bráðabana
Þau töpuð þó á mjög svo ansalegri spurningu fannst mér!! Það var bara spurning um nanósekúndu hvor liðið væri með þetta rétt!!!
Laugardagurinn byrjað svo á því að ég fór niður í Háskóla Íslands á stóra háskóladaginn, fékk fullt af bæklingum og sá mjög flotta efnafræði sýningu! Ég ætla í verkfræðina næsta haust en er ekki alveg búin að ákveða hvaða verkfæri...sennilega verður það nú iðnaðr-,véla- eða efnaverkfræði!
Jæja svo brunaði ég beint upp í Gust úr HÍ til að skrá mig á fyrstu vetrarleikana! Ég átti að vera í ungmennaflokk en þar sem við vorum bara 2 þá var hann feldur niður og ég keppti í flokk sem heitir konur 2 og eru sem sagt minnavanar konur! Ég lenti í 3. sæti og er ég mjög sátt við það![]()
Ég var svo á klukkunni í leik HK og Akureyri og verð ég nú að segja að mér fannst það mjög slakur leikur, HK voru ekki að sýna sínar bestur hliðar![]()
Á gær var svo sameiginlega ganga chihuahua deildar og papillion deildarinnar og við Kristín fórum auðvitað! Gangan var í Þjóðhátíðarlundi upp í Heiðmörk og við vorum mjög lengi að finna þetta, rúntuðum um heiðmörkina í hálftíma eða eitthvað áður en við fundum þetta![]()
Restin af deginum fór svo í að læra efnafræði og kíkja aðeins upp í hesthús!! Í gærkvöldi fór ég svo í sýningarþjálfu, mjög gaman var að skoða alla hundana á borði!
Jæja það styttist í sýningu, ég er komin með nýjan hund að sýna!!! Er að fara að sýna snása tík, veit reyndar ekki meira um hana en er að fara með hana í sýningarþjálfanir um næstu helgi!! Svo verð ég að hjálpa Ástu með griffon krúttin
hlakkar ekkert smá til![]()
Jæja næsti tími fer að byrja svo það er best að koma sér....
Jæja.....
En nóg um skóla!! Það eru 16 dagar í næstu sýningu og ég hlakka svo til, það verður brjálað að gera
Ég held að það sé best að fara að læra íslensku núna svo það gangi eitthvað betur en sagan.
Það er eins gott að það eru fleiri en ég og Berglind sem lesum þetta
Kolla má ég setja þig í linkana mína??
Helgin að verða búin!
Ég er búin að vera með strákan mína á móti niðri í Fram húsi, þeir urðu í 2. sæti! Stóðu sig mjög vel, það er svo gaman að sjá munin á þeim frá síðasta móti, sérstaklega þegar maður á þátt í þessu þar sem ég er nú auðvitað þjálfarinn þeirra
Við Eldur sýndum hundafimi á laugardaginn í Garðheimum, Eldur var reyndar ekki alveg að nenna þessu! Labbaði brautina í rólegheitum og var mjög lengi að taka hoppin
Ég kíkti svo upp í Garðheima í dag á milli leikja hjá strákunum og fékk fljótlega það verkefni að halda í Storm í kynningarbásnum fyrir Ástu Maríu þar sem hún var með 3 hunda
Ég fór líka í bíó í gærkvöldi á Sweeney Todd, hún er mjög góð
Nú er ég búin að eiða allri helginni í eitthvað annað en að læra og ég er að fara í 2 próf í næstu viku
Jæja þá er ég búin að skrifa allt sem ég man eftir í augnablikinu! Best að reyna að læra eitthvað!
Nemó búið:(
Síðasta nemóið mitt er búið
ég trú því varla að þetta sé búið, áður en ég veit verður skólinn búin líka og ég þarf að fara að ákveða hvað ég vil læra meira!
Ég skemmti mér samt frábærlega, leikritið var mjög gott og maturinn á Rauðará var geðveikur
Ég ætla pott þétt að fara og sjá leikritið aftur!
Ballið var ekki eins skemmtilegt, það var svo rosalegur troðningur í röðinni fyrir utan að það eiðilagði ballið fyrir mér, ég hélt að ég yrði troðinn undir
Stórhjómsveit Jóns Ólafssonar var að spila ásamt Jónsa, Stefáni Hilmarssyni og Byrni Jörundi, þeir voru mjög fínir.
Fyrir utan þennan rosalega troðning sem var í röðinn fyrir utan þá var þetta bara eins og hvert annað skólaball, smá slagsmál, ofurölvi fólk, nokkur pör sem bókstaflega voru að éta hvort annað
og mikið af fólki á dansgólfinu!
Takk fyrir förðuning og hárgreiðsluna Berglind
þetta var geðveikt![]()
Svo er bara kominn helgi! Strákarnir mínir eiga að spila 2 leiki í kvöld og 2 leiki seinni partinn á morgun! Svo eru smáhundadagarnir í Garðheimum á morgun, við Eldur eigum að sýna hundafimi ásamt öðru fólki kl.14 í garðskálanum í Garheimum
Endilega komið og kíkið ef þið getið
Ég ætlaði líka að vera í kynningarbás en svo komst ég að því að ég þurfti að vera að þjálfa á nákvæmlega sama tíma![]()
Fyrsta bloggið!
Ég er búin að vera að dunda mér við þetta allt saman og það gengur svona upp og ofan, skil ekki alveg allar þessar stillingar
Svo er Nemó á fimmtudaginn. Já það er komið að því sem verzlingar bíða allt árið eftir.....Nemó eða Nemendamótið
Föstudagurinn fer að öllum líkindum í svefn, þangað til ég þarf að mæta að þjálfa!
Svo eru strákarnir sem ég er að þjálfa að fara að keppa um helgina.
Já og svo eru smáhundadagar í Garðheimum um helgina, við Eldur erum að fara að sýna hundafimi á laugardaginn! Ég skal setja inn tíma þegar ég veit hvenær það verður, allir að mæta og horfa á okkur og auðvita að sjá alla hina hundana
Ég held að þetta sé komið gott hjá mér núna