Auglýsing

Ísland

Jæja.....

26. febrúar 2011 klukkan 15:48
Ég er klárlega ekki að standa við áramótaheitið!!! Það líður alltof langt á milli blogga!! jæja þetta ætti að gera orðið hið fínasta blogg, ég er með fullt af hlutum til að skrifa um!
Lóðaríði hennar Kröflu kláraðis fljótlega eftir síðasta blogg og Eldur var voða hamingjusamur að fá Kröflu sína heim afturWink og Krafla var auðvitað glöð að koma heim!
Krafla
Fröken Daisy púðlu herforingi kom svo í 2 vikna pössun í byrjun febrúar og var það nú svoldið skrautlegt ævintýri!!
Daisy
Hér er mynd af henni rétt eftir að ég var búin að setja nýtt tígó í hana!! Hún var voða fín í svona 30 mínútur en eftir þann tíma var ekki hægt að sjá að það væri minna en klukkutími síðan það var sett nýtt tígóLaughing
Daisy
Daisy að skemmta sjálfri sér!! Rétt áður en ég smellti af já var hún rúllandi um gólfið með beinið! Henni fannst sko lang best að naga bein liggjandi á bakinu!!
Úti
Krafla
Eldur
Hundarnir að skemmta sér konunglega í einum göngutúrnum í meira en -10°C. Já það er búið að vera rosalega kalt hérna núna í langan tíma -20°C eða meira þegar ég vanka á morgnana og það fer ekki upp fyrir -10°C yfir daginn. Þannig að göngur hafa ekki verið margar, það er bara einfaldlega of kalt til að fara að labba bæði fyrir mig og hundana.
Fyrir viku síðan fór Merja til Lettlands og Krafla fór með henni. Þetta var tvöföld sýning og gekk allt mjög vel á laugardeginum. Krafla fékk exellent og 3 sæti í ungliðaflokk þetta var fyrsta sýninginn hennar ekki í hvolpaflokk svo hún var aðeins með sínar eigin hugmyndir um það hvar hún vildi labba..hehe! Á sunnudeginu var hún svo miklu betri og viljugri til að labba þar sem hún átti að labbaWink og gerið allt alveg eins og hún átti að gera. Það líka skilaði því að hún fékk excellent, 1. sæti í ungliðaflokk og ungliða meistarasti. Hún varð svo besti ungliði tegundar (BOB Junior) og gerði sér svo lítið fyrir og varð besta tík tegundar og besti hundur tegundar (BOB) aðeins 9 mánað á sinni annari sýningui ungliðaflokk. Ég er svo ánægt með litla skottið mitt, hún gæti ekki byrjað sýningarferilinn betur!!!
Krafla
Jæja ég ætla ða láta þetta duga í bili! Það eru fleiri myndir hér! Ef þið flettið áfram þá sjáið þið fullt af myndum úr frostgöngum.
Góða skemmtun og gangi ykkur vel sem eruð á sýningunni á Íslandi, ég bíð spennt eftir fréttum að tjúanum á morgun!!
Munið svo að kvittaKiss

Góðar fréttir!!

02. febrúar 2011 klukkan 03:54

Það ætlar ekki að ganga vel hjá mér að standa mig í blogginu!! Þið verðið reyndar kæru lesendur að vera duglegri að kvitta eða eru kannski allir búnir að gefast upp á að lesa þetta!! Jæja ég ætla allavega að henda smá hérna inn!!
Ég gleymdi að segja frá því í ársyfirlitinu mínu frá 2010 að Harry fór til Pólands í desember, hann er þar í góðu yfirlæti hjá atvinnuhandler og ætlar að reyna að ná sér í nokkur góð úrslit á sýningum vonandi. Ég fékk mynd senda af Harry fyrir um 2 og hálfri viku en hér er hún.
Harry
Harry byrjaði svo sýningarferilinn í Póllandi rosalega vel en hann varð besti hundur tegundar með meistarastig og svo varð hann í 4 sæti í tegundarhópnum. Alveg frábær árangur og ég gæti ekki verið ánægðari!!
Harry

Ég fékk svo þær góðu fréttir þegar Ketill kom úr einangrun að strákurinn væri bara hress og kátur. Hann er búin að koma sér rosalega vel fyrir hjá Kollu og VilluLaughing
Annars gengur lífið í Finnlandi bara sinn vana gang svo sem. Krafla reyndar ákvað að byrja að lóða daginn sem ég kom aftur til Finnlands og því er hún búin að vera í pössun hjá Merju en þetta blessaða lóðarí ætti nú að fara að klárast og þá getur hún komið heim!!
Það er enþá allt á kafi í snjó og ekkert útlit fyrir að hann ætli að fara neitt. Snjórinn kom mánuði fyrr en síðasta vetur, ætli það þíði að hann verð mánuði lengur!!!
Læt fylgja með nokkrar myndir af Eldi í snjónum!
Eldur
Eldur
Eldur

22. janúar var svo fyrsta sýning ársins hér í Finnlandi og þarf með líka eina sýninginn þangað til í apríl hér í suður Finnlandi. Eldur og Krafla voru skráð og gekk báðum vel. Krafla var önnur í tíkar hvolpunum með heiðursverðlaun og mjög fína umsögn. Eldur fékk svo excellent en fékk ekki sæti í stórum meistaraflokk! Hér er mynd af Eldi eftir sýningarbað og blástur!!
Eldur
Eldur

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili. Verið nú duleg að kvitta og vonandi kemur nýtt blogg eftir ekki svo langan tíma. Það er líka kominn tími til að uppfæra allt hérna á blogginu og ætla ég að fara af stað í að gera það fljótlega!

Árið 2010

11. janúar 2011 klukkan 09:50
Jæja það er kominn tími á skella inn einhverju um árið 2010. Þetta er örlítið í anda við hvernig 2010 var hérna hjá mér blogglega séð seinnt!

Janúar
Ég fór aftur til Finnlands í byrjun janúar og þarf gekk lífið bara sinn vana gang!! Frost, snjór og ekkert útlit fyrir að það ætti eftir að breytast á næstunni! Göngutúrar með hundana voru í lágmarki enda ekkert vit að ætla að labba í -15°C en Harry og Eldur kipptu sér svo sem ekki mikið upp við það enda fannst þeim frostið ekkert sérstaklega skemmtilegt. Í lok janúar var fyrsta sýning ársins hjá okkur og strákunum gekk bara mjög vel, báðir fengu excellent og sæti í sínum flokk.
Vetur

Febrúar
Febrúar kom og fór og ekki minnkaði snjórinn eða frostið. Annað gerðist svo sem ekki merkilegt í febrúar nema að ég fór skyndiferð til Lettlands með 2 af hundunum hennar Merju. Þetta var sem sagt sýningar ferð og önnur stelpan sem ætlaði að fara og hafa hundana hennar Merju með sér veiktist skyndilega og gat því ekki farið svo ég fór í staðinn. Þetta var hin fínasta ferð og gekk bara mjög vel! 
Eldur og Harry

Mars
Það var nóg að gera í mars, við Merja fórum til Litháen á tvær CACIB sýningar þar. Eldi og Harry gekk mjög vel, fengu báðir excellent og Harry var annar í sínum flokk en Eldur þriðji báða dagana. Síðan helgina eftir Litháen var alþjóðlegsýning í Finnlandi og þar voru báðir strákanir mínir skráðir aftur. Þeir fengu báðir very good en mjög fínar umsagnir. Harry varð svo 1. árs þann 20. mars! Í lok mars fór loksins að sjá fyrir endan á öllum snjónum í Finnlandi en hann byrjaði að bráðna hægt og rólega.

Apríl
Apríl hófst á að reka snjóinn hratt í burtu en allt þetta magn af snjó tók langar tíma í að hverfa. Veðrið í apríl var með besta móti og var það nýtt í göngur og lausahlaup á ströndinni. Harry breitist úr sófakarteflu í ofvikan brjálaðan hlaupagarp og hann og Eldur skemmtu sér konunglega saman! Undir lok apríl var nánast allur snjór horfinn og veðrið var orðið nokkuð þægilegt. Í lok apríl var sýning hjá Harry og fékk hann very good, 2. sæti og mjög fína umsögn. Eldur var ekki skráður en ég ákvað að gefa honum nokkura mánaða sýningarpásu.
Harry
Eldur
Harry

Maí
Vorið kom mjög snemma í Finnlandi, um miðjan maí var orðinn 20°C þegar heitast var, logn og ekki ský á himni! Þá ákvað ég líka að þetta væri orðið of heitt til að labba með  strákan um miðjan daginn og ég held að Eldur hafi alveg verið sammála mér en Harry var nú eiginlega bara alveg sama. Þann 18. maí var svo liðið ár síðan ég kom fyrst til Finnlands og ekkert útlit fyrir að ég flytji heim á næstunni. Í lok maí fór Harry með Merju og Sönnu á sýningu í Helsinki og svo í Eistlandi daginn eftir. Í Helsinki endaði hann sem annar besti rakki með meistarastig og besti ungliði tegundar. Í Eistlandi stóð hann sig svo líka vel og varð aftur annar besti rakki og líka besti ungliði tegunda með ungliða meistarastig.
Eldur
Harry

Júní
Núna var sýningar tímabilið komið á fullt og dagskráin leit út fyrir að ætla að verða sýningar næstum hverja helgi. Það styttist í heimssýninguna í Danmörku og ég var farin að hlakka rosalega til! Harry stóð sig rosalega vel á sýningu í byrjun júní og varð fjórði besti rakki með vara-meistarastig. Helgina fyrir heimssýninguna var Eldur skráður á alþjóðlega sýningu og gekk honum svona líka vel en hann varð besti rakki tegundar og annar besti hundur tegundar og fékk sitt fyrsta CACIB! Nú kom að heimssýningunni og tilhlökkun í hámarki. Ég skemmti mér rosalega vel og fannst frábærlega staðið að sýningunni í alla staði ekki skemdi svo fyrir að fá að hitta Ástu Maríu eftir alltof langan aðskilnað. Harry stóð sig rosalega vel og fékk excellent í mjög stórum ungliðaflokk þar sem aðeins 7 fengu excellent. Ég get því sagt að ferðin og sýningin hafi alveg staðið undir væntingum.
Ég og Harry

Júlí
Júlí hélt áfram í sýningar stússi en helgina eftir heimssýninu var sýning í Finnlandi þar sem Harry fékk very good, 1. sæti í ungliðaflokk og mjög fína umsögn. Aðra helgina í júlí fór ég svo til Eistlands með strákana og gekk sú ferð mjög vel. Harry fékk þau 2 ungliða meistarastig sem hann þurfti og varð eisneskur ungliða meistari. Hann var svo annar besti ungliði tegundar og annar besti hundur tegundar á laugardeginum. Á sunnudeginu varð hann svo besti ungliði tegundar og varð svo besti hundur tegundar. Eldur var fjórði besti rakki á laugardeginum og þriðji besti rakki á sunnudeginu svo þetta bara mjög góð ferð. Helgina eftir Eistlandsferðina var svo svona sumardagur hjá tjúa klúbbnum í Finnlandi og þar er alltaf nóg af fjöri, þar er til dæmis svo kallað match show þar sem Harry gerið sér lítið fyrir og varð besti hundur sýningar. Undir lok júli bættist enn í hundahópinn minn en það var hún Krafla, Helmiäisen Krafla. Í lok júlí kom svo Guðlaug systir í heimsókn til Finnlands og skemmtum við okkur mjög vel.
Harry
Ég og Krafla
Guðlaug

Ágúst
Í ágúst fór ég með Guðlaugu í skemmtigarð inn í Helsinki og svo fórum við að versla fullt. Annars notuðum við bara tíman í að labba með hundana á ströndinni og hafa það gott því ég þurfti líka að vinna en það var mjög gott og gaman að fá hana í heimsókn. Harry fór á sýningu í Finnlandi í byrjun ágúst, hann varð þriðji besti rakki með vara-meistarastig. Hann fór svo líka á sýningu í Noregi um miðjan ágúst eða réttara sagt þá voru það 2 sýningar og fékk hann fyrstu einkun báða dagana, fyrri daginn var hann annar í ungliða flokk með heiðursverðlaun og seinni daginn var hann fyrstu í ungliðaflokk með meistaraefni. Í lok ágúst var svo sýning í Finnlandi þar sem Harry varð þriðji besti rakki með finnskt meistarastig. Þetta var hið svo kallaða Toy dog spesialty en þar sýndi ég líka hann Fred sem Merja átti og varð hann annar besti hundur sýningar.
Krafla
Eldur
Harry
Krafla
Ég og Fred
Fred

September
September var voða rólegur, ég dundaði við að fara í göngutúra með hundana. Það bættist tímabundið í hundahópinn minn en hann Ketill kom til að vera í passi hjá mér þangað til hann yrði mér sammála til Íslands um jólin! Það fór að hausta í Finnlandi í lok september.
Ketill

Október
Í október hófst sýningartörnið aftur eftir um 1 mánaðar pásu. Fyrstu vikuna í október fór Harry til Slóveníu á Evrópusýninguna með Merju og stóð sig rosalega vel með excellent og 2. sæti. Helgina eftir það var svo sérsýning tjúa klúbbsins í Finnlandi og voru báðir strákarnir mínir skráðir. Eldur fékk excellent og Harry fékk very good og annað sæti í sínum flokk. Þriðju helgina í október fóru ég, Merja og Nenne dóttir hennar Merju til Eistlands á sýningu og gekk það svona allt í lagi, Eldur fékk excellent og varð fjórði besti rakki. Restin af mánuðinum var svona nokkuð rólegur en Merja fór á einhverja sýningu sem ég eða strákarnir mínir fóru ekki á. Fyrsti snjórinn í Finnlandi kom svo 22. október en stoppaði bara í rétt 1 dag.
Eldur og Krafla

Nóvember
Nóvember kom án þess að það snjóaði meira fyrr en eftir miðjan mánuð en meira um það seinna. Fyrstu helgina í nóvember fór ég til Danmerkur á hundasýningu með strákana og gekk það bara rosalega vel. Á laugardeginum varð Eldur annar besti hundur tegundar með danskt og alþjóðlegt meistarastig og Harry fékk excellent og 1. sæti í sínum flokk. Á sunnudeginum varð Eldur svo fjórði besti rakki og Harry fékk aftur excellent og 1. sæti í sínum flokk en hann fékk svo líka danskt meistarastig. Með því að næla sér í dansk meistarastig á laugardeginum þá varð Eldur danskur meistari og svo líka norðurlanda meistari svo ég kom bara nokkuð sátt heim frá Danmörku. Aðra helgina í nóvember fórum við svo á sýningu í Jyväskylä sem er í um 5 klst. keyrslufjarlægð. Af mínum hundum þá var það bara Harry sem var skráður og stóð hann sig rosalega vel og varð fjórði besti rakki með finnskt meistarastig. Í lok nóvember fórum við Krafla á hvolpasýningu og stóð hún sig bara nokkuð vel og varð önnur í sínum flokk með heiðursverðlaun. Þá sömu helgi fór Harry til Noregs á Nordich Winner sýninguna en hún Riitta var svo æðislega að taka hann með sér, Harry stóð sig rosalega vel og fékk 1. einkun og 2. sæti í sínum flokk. Um miðjan nóvember fór svo að snjóa aftur hér í Finnlandi. Ég fékk svo þær leiðinlegu fréttir 25. nóvember að hún amma mín væri dáin.
Eldur
Harry

Desember
Í byrjun desember fór ég í skyndiheimsókn til Íslands til að verða við jarðaförina hennar ömmu. Helgina 11.-12. des. voru svo Winner sýningarnar í Finnlandi en það voru 2 aðþjólegar sýningar og 2 winner titlar í boði, Helsinki Winner og Finnish Winner. Harry var skráður báða dagana og stóð sig rosalega vel. Hann fékk excellent og annað sæti í unghundaflokk á laugardeginum. Á sunnudeginum bætti hann um betur og endaði sem þriðji besti rakki með vara-meistarastig. Helgina eftir winnersýningarnar fór Harry svo með Merju til Litháen á 3 sýningar þar, 2 alþjóðlegar og 1 sérsýningu. Hann stóð sig rosalega vel á föstudegi og laugardegi en ég man ekki nákvæm úrslit nema að hann fékk excellent og sæti í sínum flokk. Á sunnudeginum fékk hann svo litháensk meistarastig og alþjóðlegt meistarastig svo að ég er bara nokkuð sátt með strákinn minn. Ég kom svo til Íslands þann 20. des. og Ketill með mér en hann er bara í góðu yfirlæti í einangrun og losnar út eftir ekki svo langan tíma. Ég varði jólum og áramótum á Íslandi í góðu yfirlæti hjá hótel mömmu, fór í ófáa spila hittinga hjá vinum sem ég var ekki búin að sjá í alltof langan tíma og hafði það bara mjög gott.
 Harry
Krafla

Jæja þá er þessi annáll loksins tilbúinn. Ég er kominn aftur til Finnlands og hef það bara ágæt, nóg að gera í vinnunni og það líður að sýningu hérna en fyrsta sýning ársins verður 22. janúar. Áramóta heitið mitt hérna er svo að standa mig betur við bloggið en á síðasta ári og verðið þið líka að vera dugleg að reka á eftir mér!!

Gleðileg jól!!!

25. desember 2010 klukkan 02:34
Ég ætla bara að henda þessu hér inn fyrir þá sem enþá nenna að kíkja hérna inn!! Mér þykir mjög leiðinlegt að hafa ekki bloggað hérna en ég ætla að reyna að bæta úr því á milli jóla og nýárs!!

Gleðileg jól allir og farsælt komandi ár. Takk fyrir árið sem er að líða megi nýtt ár verða ykkur gott og gæfu ríkt!

Jólakort

Snjór, snjór og meiri snjór!!

22. nóvember 2010 klukkan 23:51
Já það er snjór í Finnlandi!! Ef ég man rétt þá fór að snjóa að fimmtudaginn í síðustu viku og að er bara allt búið að vera hvítt síðan þá!! Sem er freka óvenjulegt þar sem Finnlandi er svoldið líkt Íslandi með það að það snjóar og svo rignir snjóinn í burtu eftir 1 dag. Síðasti vetur var þó mjög óvenjulegur þar sem það var snjór frá því um miðjan desember og þangað til í apríl! Ég vona svo sannalega að það endurtaki sig ekki því þótt mér finnist snjórinn og veturinn skemmtilegur þá má nú öllu ofgera!!!

Jæja nóg um það!! Laugardaginn 13. nóvember fórum, ég, Merja og Sanna á sýningu í Jyväskylä en það er í svona um það bil 5 klst. keyrslufjarlægð frá okkur! Við fórum með 3 hunda sem allri fengu excellent og Harry varð svo fjórði besti rakki með finnskt meistarastig.
Um síðustu helgi var svo síðasta sýning HRFÍ og stóðu afkvæmi hans Elds sig rosalega vel en Eyja varð önnur besta tík tegundar með vara alþjóðlegt meistarastig!

Meira er nú ekki að frétta í bili. Dagskráinn er farinn að rógast aðeins hérna í Finnlandi, næsta sýning hjá okkur eru Winner sýningarnar sem eru 11. og 12. des. þar sem Harry sæti er skráður!!
Svo styttist alltaf í að ég komi til Íslands og ég er farinn að hlakka svo mikið tilLaughing

Takk enn og aftur allir fyrir kvittið við síðasta blogg og endilega haldið áfram að vera dugleg að kvitta!! Mér finnst rosa gaman að sjá hverjir nenna að lesa þetta!!
Vonandi líður ekki svo langt á milli blogga næst og kannski man ég eftir að kippa með mér myndavél þegar ég fer út að labba í snjónum einhvern daginn!!

Jæja kominn tími á blogg??

10. nóvember 2010 klukkan 18:25

Jæja já þið segið það!! En og aftur líður alltof langt á milli blogga!!

Fyrsti snjórinn búin að koma í Finnlandi og farinn aftur!! Hann stoppaði nú bara stutt við eða í rétt rúmlega 1 dag. Hundarnir skemmtu sér stórkostlega en ég fór og labbaði á ströndinni með þeim í snjónum!
Snjór
Skógurinn í snjókomu!
Eldur
Snjór
Eldur&Krafla
Mér finnst þessi mynd snild!! Krafla í því líkum árásarhug!!
Ketill&Krafla
Krafla og Ketill að grafa í snjónum!
Ketill&Krafla
Ketill
Ketill sæti
Snjór
Ströndinn í snjókomu!
Eins og ég sagði þá fór snjórinn því miður mjög fljótt aftur en núna ef búið að vera frost nokkra daga og í gær svo hálfgerð snjókoma eða það sem við Íslendinga köllum slidduWink svoleiðis að veturinn er sko kominn!!

Um síðustu helgi fór ég til Danmerkur með Sönnu og Tuuli á tvöfalda alþjólegasýningu í Herning. Þetta var frábær ferð í alla staði og ég kom bara nokkuð sátt heim sko!!
Eldur gerði sér lítið fyrir og varð BOS á laugardeginum með danskt meistarastig og alþjóðlegtmeistarastig þannig að núna er hann orðinnn danskur og norðurlanda meistariLaughing
Á sunnudeginum varð Eldur svo fjórði besti rakki með æðislega umsögn!!
Harry fékk excellent og fyrsta sæti í unghundaflokk báða dagana en á sunnudeginum fékk hann líka danskt meistarastigLaughing
Þannig að ég er bara mega sátt með strákana mína!!
Eldur
Ljósmynd: Linda Björk Jónsdóttir.
Eldur á laugardeginum!!

Jæja endilega kvittið svo ég sjái hverjir nenna enþá að lesa þetta!!

Nóg að gera!!

18. október 2010 klukkan 21:14
Já það er sko nóg að gera!! 3 sýningarhelgar búnar síðan ég bloggaði síðast!!

Helgina 2.-3. október var Evrópusýninginn í Slóveníu en Harry fór þangað með Merju og stóð sig rosalega vel. Á
laugardeginum var sérsýning fyrir tegundarhóp 9 og þar fékk Harry excellent og varð i 3 sæti í sínum flokk á sunnudeginum var svo Evrópusýninginn sjálf og þar fékk Harry líka excellent og var í 2 sæti í sínum flokk.

Helgina 9.-10. október var svo Chihuahua specialityið hérna í Finnlandi og voru bæði Harry og Eldur skráðir þar. Eldur fékk excellent (og var í 5. sæti í meistarflokki. Það voru 12 hundar skráðir í meistarafokk og held ég allavega 10 fengu excellent svo Eldur stóð sig voða vel. Harry fékk very good og varð í 2 sæti í ungliðaflokk en ungliða flokkurinn var nokkuð stór, held ég allavega 5 eða 6 hundar. Hundunum hennar Merju gekk svo ágætlega en ég man ekki nákvæml úrslit nema að ræktunarhópurinn hennar í síðum var BOB ræktunar hópur og svo BISS 2!

Núna síðustu helgi fórum við Merja svo til Eistlands á sýningu á laugardaginn. Það gekk bara ágætlega en því miður fengum við ekki það sem við þurftu á tjúana. Russian toyarnir hennar Sönnu sem við vorum með voru BOB og BOS og urðu eistneski meistara. Eldur var þriðji besti rakki, Kitty þriðja besta tík og Otti var annar í sínum flokki. En þetta kemur vonandi bara næst.

Ég og hundarnir höfum það bara gott og dundum okkur við að labba örðru hverju í skóginumWink Það er sko komi haust í Finnlandi, næstum öll lauf fallin og farið að frjósa sumar nætur. Yfir daginn hlýnar þó og það er oft voða fallegt veður til að fyrir göngutúra. Ég hef verið voða löt að taka myndavélina með mér en kannski að ég drífi í því á næstunni, hver veit!

Annars þá er ekki mikið meira að frétta nema að það verður nóg að gera fram undan! Næstu helgi verð ég reyndar heima en Merja er að fara á sýningu sem er held ég í 5 eða 6 tíma keyrslufjarlægð frá okkur!

Takk fyrir kvittin síðastLaughing

Paska!!

02. október 2010 klukkan 20:51
Aftur líður svona langt á milli blogga!!Surprised Núna hef ég enga afsökun nema bara leti!!!
Annars þá er bara allt gott að frétta frá Finnlandi. Það er búin að vera smá sýningarpása núna síðasta mánuðinn en nú tekur við aftur sýningar hverja helgi fram í nóvember!!!
Harry er í þessum skrifuðu orðun í Slóveníu á Evrópusýningunni með Merju og á hann örugglega eftir að standa sig vel!
Næstu helgi eru svo 2 sýningar. Á laugardeginum er Chihuahua speciality hér í Finnlandi og mér skilst að það sé alveg ágætlega mikið af hundum skráðir. Á sunnudeginum er svo svokölluð tegundarhópssýning en þar eru þá bara tegundarhópur 1 og 9. Báðar þessar sýningar eru það langt í burtu frá okkur að við komum til með að gista á hóteli aðfaranótt sunnudags í staðinn fyrir að fara heim!! Líklegast verðum við því ágætlega þreytt þegar við komum heim á sunnudagskvöldinu!!
Annars er svo það að frétta að ég er með fjórða fjófætlinginn í pössun þangað til ég kem til Íslands um jólinn en þá ætlar hann Ketill að verða mér samferða til Íslands. Hann Ketill heitir í ættbók Rosalago MM's Xavier en það eru þær Kolla og Villa sem eru svo heppnar að vera að fá þennan frábæra strák!!
Ketill
Já hann kann sko að hafa það gottWink
Ketill&Krafla
Og þarna eru gormarnir Krafla og Ketill sem fóru alveg óvart að synda í einni göngunni okkar í fjörunni!
Harry
Hann er nú ekki slæmur!!
Eldur
Eldur að fljúga!!
Ketill
Ketill svona í lokinn!!

Jæja þetta verður því miður bara svona stutt núna en vonandi kem ég mér í það að blogga aftur eftir helgi með fréttum að evrópusýningunni!!

Myndir frá síðustu helgi!

03. september 2010 klukkan 19:44
Hér koma nokkrar myndir frá síðasta sunnudegi af okkur FredLaughing
Fred og ég
BISS-2Laughing
Fred
Á ferðinni! Hann er með æðislegar hreyfingar og nær rosalega góðum hraða á ferðinni!! Eins og þið sjáið á myndinn þá eru skrefin löng og góðWink
Fred
Sæti!!
Fred
Þetta er svo BOB myndinn.

Allar myndirnar eru teknar af David Dalton. Hann er frábær ljósmyndari og ég væri alveg til í að fá hann til að taka myndir af mínum hundum!!
Munið að lesa færsluna hérna fyrir neðan frá sýningunni og endilega að kvittaWink

Suuri

01. september 2010 klukkan 19:26
Jæja best að vera góður bloggari og setja eitthvað hérna innWink
Síðasta sunnudag var sérsýning finnska smáhundaklúbbsins og voru yfir 1300 hundar skráði, all flestir þeirra voru úr tegundarhóp 9 en það eru samt nokkrar tegundir úr öðrum tegundarhópum sem taka þátt líka. Það var breskur dómari að dæma tjúan Aimee Davies og það var frekar mikil skráning í tjúanum. Það mikilað snögghærðir hvolpar voru færðir undir annan dómar og síðhærði hvolpar og ungliða rakkar voru líka undir öðrum dómara.
Í síðhærðum þá sýndi ég Lexus sem fékk excellent og 1. sæti í unghundaflokk svo fékk hann vara meistarastig. Ég sýndi líka Fred sem fékk excellent og 1. sæti í meistaraflokk, besti rakki tegundar og endaði svo sem besti hundur tegundar. Þannig að hann átti að mæta í stóra hringinn seinna um daginn en meira um það seinnaWink
Í snöggum þá náði ég ekki að sýna Harry í sínum flokk því ég var föst í hvolpahringnum en hann fékk excellent og 1. sæti í unghundaflokk og endaði svo sem þriðji besti rakki tegundar með meistarstig en ég náði að sýna hann í besti rakki tegundar hringnum! Ég sýndi svo líka hana Wilmu sem fékk excellent og 1. sæti í mjög stórum ungliðaflokk, yfir 15 tíkur ef ég man rétt. Að síðustu sýndi ég svo mega krúttið hana Lady í hvolpaflokk og varð hún í öðru sæti með heiðursverðlaun.
Við vorum því nokkuð sátt með daginn, Merja sýndi líka ræktundarhóp í síðhærðum sem fékk heiðursverðlaun og fór í stóra hringinn!
Það var frekar kalt þennan dag og rigning um morguninn svo seinni partinn voru allir orðnir uppgefnir! Ég fór engu að síður þvílíkt hress með Fred inn í stóra hringinn og það var ekki að sjá á honum að hann væri orðinn þreyttur, hann sýndi sig eins og draumur enda er hann æðislegur sýningarhundur!!! Stóri hringurinn var fullur af flottum hundum og það tók sinn tíma fyrir dómaran að skoða þá alla en á endanum kláraði hann það. Hann valdi svo held ég 7 eða 8 hunda í undaúrslit og viti menn hann valdi Fred!! Til að toppa æðislegan dag svo þá varð Fred annar besti hundur sýnigarLaughing Frábær endir á góðum degi og æðislegur endir á sýningarferli Fred í Finnlandi í bili allavega en hann er að fara til nýrra eigenda eftir 2 vikur!!
Því miður þá voru allar myndavélar heima en vonandi koma myndir á netið einhvern tíman sem ég kem þá til með að deila með ykkurWink
Meira er það nú ekki í bili næsta sýning er um næstu helgi svo það er nóg að gera núnaTongue out
Ég er búin að setja fullt af nýju myndum inn í galleríið mitt sem þið getið séð með að smella hér og fletta áfram!
Munið svo að kvitta!

Klukkan